Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe og Ineos eru að byggja upp nýja starfsemi í Danmörku þar sem gömul olíu- og gasmannvirki í Norðursjó verða nýtt til að geyma koltvísýring undir hafsbotni. Verkefnið nefnist Project Greensand og byggir meðal annars á Nini West-borpallinum undan ströndum Danmerkur. Þar verður gömlum olíubrunnum snúið við. Í stað þess að dæla olíu upp verður fljótandi koltvísýringi dælt um 1.800 metra niður í berglög þar sem honum er ætlað að vera varanlega geymdur. Þegar starfsemin hefst verður verkefnið fyrsta kolefnisgeymslan í Norðursjó sem rekin er á viðskiptalegum grunni. Þegar það verður komið í fullan gang er stefnt að því að geyma allt að átta milljónir tonna af koltvísýringi á ári. Ineos hefur einnig fjárfest í sérstöku skipi, Carbon Destroyer 1, sem mun flytja fljótandi koltvísýring frá Esbjerg út á haf og dæla honum niður í geymslurnar. Ratcliffe sér fyrir sér að slík skip geti orðið fleiri ef starfsemin stækkar. The Telegraph segir að danska verkefnið geti orðið nokkurs konar fyrirmynd fyrir framtíð Norðursjávar eftir því sem olíu- og gasvinnsla dregst saman. Styrkur verkefnisins felist einkum í því að nota mannvirki sem þegar eru til staðar, í stað þess að byggja allt kerfið frá grunni. Blaðið ber Danmörku sérstaklega saman við Bretland. Ineos hafði áður reynt að þróa sambærilegt verkefni á breska hluta Norðursjávar en segir regluverk, kostnað og skrifræði hafa staðið í vegi fyrir því. Fyrirtækið sneri sér því að Danmörku þar sem verkefnið hefur komist hraðar áfram. Að mati Telegraph sýnir Project Greensand hvernig hægt sé að finna nýtt hlutverk fyrir verðmæt olíu- og gasmannvirki þegar hefðbundin vinnsla minnkar og byggja um leið upp nýja atvinnugrein í kringum flutning og geymslu koltvísýrings.