Stjórn Volkswagen hefur samþykkt áætlun um að tvöfalda fyrirhugaða fækkun starfa hjá þýska bílaframleiðandanum úr 50 þúsund í 100.000 á komandi árum. Á vef WSJ segir að félagið hafi glímt við tollastríð Donalds Trumps og harðnandi samkeppni frá Kína. Ákvörðun fyrirtækisins hefur komið á óvart en stjórn Volkswagen er oft klofin í málum sem þessum. Niðurskurðurinn naut hins vegar einróma samþykkis. Þróunin tengist endurskipulagningarpakka frá forstjóra Volkswagen, Oliver Blume, sem kallast Future Plan 2030. Félagið lýsir honum sem umfangsmestu umbreytingu í sögu samstæðunnar. Framleiðslugeta Volkswagen í Evrópu er nú meira en 500 þúsund bílum umfram eftirspurn og mikil óvissa ríkir um framtíð fjögurra þýskra verksmiðja.