Forstjóri Volkswagen, Oliver Blume, segir að þýski bílaframleiðandinn gæti þurft að fækka störfum um 50 þúsund til viðbótar við fyrri hagræðingaraðgerðir ef félagið eigi að getað náð sambærilegri samkeppnishæfni og sínir helstu samkeppnisaðilar. Þetta kemur fram í bréfi til starfsmanna, sem Reuters hefur undir höndum, þar sem hann staðfestir í fyrsta sinn að bílarisinn sé að skoða að leggja samtals niður allt að 100 þúsund stöðugildi. Fyrirtækið hafði áður neitað að tjá sig um áformin. Bílasamstæðan hefur þegar samþykkt að fækka störfum um 50 þúsund, þar á meðal hjá dótturfélögunum Porsche og Audi. Blume segir hins vegar þörf fyrir frekari hagræðingu í ljósi þess að greiningar bendi til þess að félagið standi frammi fyrir 20% kostnaðaróhagræði í samanburði við aðra stóra bílaframleiðendur. Það leiði af sér að Volkswagen þurfi í reynd að fækka stöðugildum á heimsvísu um 50 þúsund til viðbótar, að því er segir í bréfinu. „Við erum nú að meta hvað þörf sé á miklum breytingum og hvað sé raunhæft hjá öllum bílamerkjum, félögum og starfsstöðvum,“ skrifar Blume. Volkswagen tilkynnti á fimmtudaginn um uppfærð framtíðaráform samstæðunnar en þau fela m.a. í sér að hægt og rólega verði fækkað bílategundum bílaframleiðandans um allt að 50%. Sjá einnig Volkswagen fækkar bílategundum um helming Starfsmenn hafa margir kallað eftir því að stjórnendur félagsins geri betur grein fyrir fyrirhuguðum hagræðingaraðgerðum. Svo virðist sem téður tölvupóstur Blume hafi verið ætlað að lægja öldurnar innan fyrirtækisins. Heimildarmenn Reuters segja að fulltrúar verkalýðsfélaga í ráðgjafarnefnd Volkswagen hafi komið í veg fyrir að tillaga forstjórans, sem felur mögulega í sér lokun fjögurra verksmiðja, yrði tekin formlega fyrir. Volkswagen hefur staðið frammi fyrir aukinni samkeppni frá Kína, milljarða evra kostnað vegna tolla og þörf á aukinni skilvirkni í aðfangakeðju félagsins.