Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Volkswagen leggur niður allt að 100 þúsund störf

Read Full Article →

Volkswagen, stærsti bílaframleiðandi Evrópu, hyggst fækka störfum um allt að 100 þúsund og hætta framleiðslu í fjórum verksmiðjum í Þýskalandi. Aðgerðirnar eiga að lækka kostnað en félagið reynir nú að bregðast við hröðum uppgangi kínverskra keppinauta. Financial Times greinir frá. Fyrirtækið hafði þegar kynnt áform um að fækka 50.000 störfum í Þýskalandi fyrir árslok 2030 og draga úr framleiðslugetu sinni þar í landi um 500.000 bíla. Samkvæmt nýjustu áformunum, sem þýska ritið Manager Magazin greindi fyrst frá, gætu 50.000 störf til viðbótar verið lögð niður, að sögn heimildarmanns sem þekkir til málsins. Volkswagen seldi nýverið framleiðslueiningu sinnar á skipavélum, Everllence, til bandaríska fjárfestingasjóðsins Bain Capital. Salan mun skila Volkswagen 7,4 milljörðum evra. Sjá einnig Selja 51% í dótturfélagi fyrir sjö milljarða evra Oliver Blume, forstjóri Volkswagen, hefur unnið að því að einfalda samstæðu þýska bílarisans og auka áherslu á kjarnastarfsemi þess í bílaframleiðslu. Búist er við að fyrirtækið selji fleiri eignir. Evrópskir bílaframleiðendur hafa orðið fyrir miklum þrýstingi vegna meiri samkeppni frá kínverskum bílaframleiðendum. Samkvæmt samtökum evrópska bílaiðnaðarins, Acea, var nærri einn af hverjum tíu nýjum bílum, seldir í Evrópu, fyrstu fimm mánuði ársins frá kínverskum framleiðendum. Volkswagen vildi ekki tjá sig um aðgerðirnar, nánari upplýsingar eiga að verða lagðar fyrir ráðgjafastjórn félagsins þann 9. Júlí næstkomandi.

Share this article