Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sterk nýsköpun en minna af sér­hæfðu fjár­magni

Read Full Article →

Jón Ingi Berg­steins­son, stofnandi LIFA Ventures, segir tækifæri sjóðsins ekki síst felast í ósamræminu milli þess hversu öflug Norður­löndin eru í þróun lækningatækni og þess hversu tak­markað fram­boð er af fjár­festum sem sér­hæfa sig í greininni. Hann vinnur nú að upp­byggingu LIFA Ventures, norræns sér­hæfðs fjár­festingar­sjóðs fyrir ís­lenska fag­fjár­festa, sem ein­beitir sér að lækningatækni á fyrstu stigum. Hug­myndin að baki LIFA byggist á því sem Jón Ingi telur vera skýrt gat á norrænum fjár­festingar­markaði. Norður­löndin standa framar­lega í þróun lækningatækni og úr háskólum, rannsóknar­stofnunum og nýsköpunar­um­hverfinu kemur ár­lega mikill fjöldi nýrra fyrir­tækja. Fram­boð sér­hæfðs fjár­festingar­fjár­magns hefur hins vegar ekki fylgt þeirri þróun að hans mati. Tækifærið liggur að mati Jóns Inga ekki síst í ósamræminu milli þess hversu öflug Norður­löndin eru í lækningatækni og hversu fáir fjár­festar sér­hæfa sig í greininni. Á undan­förnum árum hafa nokkur norræn lækningatækni­fyrir­tæki verið seld fyrir háar fjár­hæðir. Sænska Atos Medi­cal var selt til Colop­last fyrir 2,2 milljarða evra, danska BK Medi­cal til GE Healt­h­care fyrir 1,45 milljarða dala og ís­lenska Kerecis til Colop­last fyrir 1,2 milljarða dala. Þá var sænska SAGA Diagnostics selt Roche fyrr á þessu ári fyrir 595 milljónir dala. Snemm­stigs­fyrir­tæki fá jafn­framt oft að­gang að opin­berum styrkjum, háskóla­styrkjum og engla­fjár­magni sem getur komið þeim í gegnum fyrstu rannsóknar- og þróunar­vinnuna. Að sögn Jóns Inga getur slíkt fjár­magn numið 0,5 til tveimur milljónum evra áður en kemur að hefðbundinni vísi­sjóða­fjár­mögnun. Erfiðara getur hins vegar verið að fjár­magna næsta kafla þegar fyrir­tækin þurfa að fara úr rannsóknum yfir í klíníska sann­prófun, reglu­verk og markaðs­setningu. LIFA vill horfa á Norður­löndin sem einn markað fremur en að tak­marka sig við einstök lönd. Sjóðurinn leitar því fjár­festingar­kosta í Svíþjóð, Dan­mörku, Noregi, Finn­landi og á Ís­landi. Að sögn Jóns Inga hefur LIFA fengið yfir 150 kynningar á mögu­legum fjár­festingum síðasta árið og byggt upp tengsl við háskóla, tækni­torg, hraðla og aðra fjár­festa á svæðinu. Byggir á eigin reynslu úr greininni Jón Ingi þekkir þessa veg­ferð sjálfur úr rekstri lækningatækni­fyrir­tækis. Hann stofnaði SMART-TRI­AL árið 2013, fyrir­tæki sem þróaði hug­búnað fyrir gagnaöflun í klínískum rannsóknum á lækningatækjum. Félagið var byggt upp án hefðbundinnar vísi­sjóða­fjár­mögnunar fyrstu níu árin og alls var um tveimur milljónum evra safnað í hluta­fé á þeim tíma. Jón Ingi kom meðal annars að upp­byggingu tækni, sölu og alþjóð­legs rekstrar félagsins. SMART-TRI­AL starfaði á fimm heimsálfum og gerði samninga við sex af hundrað stærstu lækningatækja­fyrir­tækjum heims áður en félagið var selt bandaríska fyrir­tækinu Green­light Guru árið 2022. Frá stofnun SMART-TRI­AL hefur Jón Ingi unnið með meira en hundrað lækningatækni­fyrir­tækjum á mis­munandi stigum, frá rannsóknar- og þróunar­starfi að klínískum rannsóknum og markaðs­setningu. Hann stofnaði jafn­framt Ís­lenska engla­fjár­festa­netið, IceBAN, árið 2024 og hefur sjálfur fjár­fest í sprota­fyrir­tækjum og fjár­festingar­sjóðum. Með Jóni Inga hjá LIFA er Snorri Helga­son, með­stofnandi og með­eig­andi félagsins. Snorri hefur unnið að upp­byggingu LIFA með Jóni Inga frá því á síðasta ári, þótt aðkoma hans hafi ekki verið gerð opin­ber fyrr en ný­lega. Snorri starfaði áður í meira en níu ár hjá Nox Medi­cal og kom þar meðal annars að upp­byggingu markaðsað­gangs, klínískrar starf­semi og endur­greiðslu­leiða í Bandaríkjunum og Evrópu. Á þeim tíma jukust tekjur Nox Medi­cal úr um 15 milljónum evra í meira en 50 milljónir. Jón Ingi segir þessa rekstrar­reynslu eiga að vera hluta af sér­stöðu LIFA. „Við viljum ekki vera fjár­festir sem hittir félagið einu sinni á árs­fjórðungi og spyr hvernig gengur. Við viljum geta hjálpað stofn­endum að leysa þau vanda­mál sem ráða því hvort lækningatækið kemst á markað eða ekki.“ LIFA Ventures er skráður rekstraraðili sér­hæfðra sjóða hjá Fjár­mála­eftir­liti Seðla­banka Ís­lands. Jón Ingi segir mark­miðið vera að byggja upp sér­hæfðan norrænan fjár­festi þar sem for­skotið felist ekki fyrst og fremst í að­gangi að fjár­magni heldur reynslu, sérþekkingu og tengslum í greininni. „Við höfum sjálfir setið sömu megin borðsins og stofn­endurnir. Það er sú reynsla sem við viljum koma með inn í fyrir­tækin.“ Frá fyrstu vísifjár­mögnun að A-lotu LIFA ein­beitir sér að norrænum lækningatækjum og greiningar­lausnum fyrir A-fjár­mögnun. Ekki er horft til lyfjaþróunar, stafrænnar heilsu eða al­mennra neyt­enda­heilsu­vara. Áherslan er fremur á vörur sem lúta sér­stöku reglu­verki, hafa skýr klínísk áhrif og þar sem sjá má raun­hæfa leið á markað og síðar til sölu fyrir­tækisins. Stefnan er að taka þátt í eða leiða fyrstu fag­legu vísifjár­mögnun fyrir­tækjanna og vinna síðan náið með stofn­endum að því að gera þau til­búin fyrir stærri A-fjár­mögnun og komast á markað. Að­stoðin nær meðal annars til reglu­verks, klínískrar þróunar, markaðs­setningar, endur­greiðslu­kerfa, hug­verkaréttinda og undir­búnings næstu fjár­mögnunar. Jón Ingi segir vandann því ekki ein­göngu snúast um að fjár­magn vanti heldur að fjár­festar þurfi að þekkja þá sér­stöku veg­ferð sem lækningatækni­fyrir­tæki þurfa að fara. „Fjár­magn eitt og sér er ekki vanda­málið. Það er nóg af peningum í heiminum. Gatið er fjár­magn sem skilur lækningatækni.“ LIFA lýsir sér sem norrænum sér­hæfðum fjár­festi sem fylgir fyrir­tækjum frá fyrstu fag­legu vísifjár­mögnun fram að A-fjár­mögnun. Sjá einnig Sér tækifæri í gati á norrænum markaði

Share this article