Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Snorri í eigendahóp LIFA Ventures

Read Full Article →

Snorri Helgason er nýr fjárfestingarstjóri og meðeigandi LIFA Ventures og mun hann leiða uppbyggingu félagsins ásamt Jóni Inga Bergsteinssyni, stofnanda. Snorri er heilsuhagfræðingur að mennt og starfaði í níu ár hjá Nox Medical. LIFA Ventures er sérhæft vísifjárfestingafélag í lækningatækni á Norðurlöndunum, með höfuðstöðvar í Reykjavík. Félagið stefnir að því að ljúka stofnun síns fyrsta sjóðs á yfirstandandi ári. Markmið félagsins er að styðja við nýsköpun í lækningatækni sem bætir meðferðir og greiningar í heilbrigðiskerfum. „Sá markaður er ört vaxandi á alþjóðavísu og býður upp á umtalsverð tækifæri til verðmætasköpunar,“ segir í tilkynningu. „Lækningatækni er meðal ört vaxandi markaða heims. Með aukinni fólksfjölgun, fleiri krónískum sjúkdómum og vöntun á starfsfólki í heilbrigðiskerfinu er þörfin fyrir lækningatækni enn meiri en áður.“ Samkvæmt gögnum frá Nordic Innovation eru aðeins um 17 prósent norrænna fjárfesta á heilbrigðissviði sérhæfðir og enn færri einbeita sér að lækningatækni. LIFA Ventures telur að þar felist tækifæri til að byggja upp sérhæft fjárfestingafélag á Norðurlöndunum með sterkt tengslanet og þekkingu á regluverki, klínískum rannsóknum og markaðssetningu lækningatækja. „Að hafa staðið í að byggja upp markaði fyrir lækningatæki og koma vörum á alþjóðamarkað er nákvæmlega sú reynsla sem við færum frumkvöðlum á Norðurlöndunum - ekki bara fjármagn, heldur þekkingu á raunverulegum áskorunum þess konar fyrirtækja,” segir Snorri Helgason , fjárfestingarstjóri LIFA Ventures. LIFA Ventures segir að það sem greini félagið frá öðrum sé samspil sérhæfingar og rekstrarreynslu: djúp þekking á regluverki, klínískum rannsóknum og greiðslukerfum, sterkt tengslanet inn í alþjóðlega lækningatæknigeirann - þar sem fjárfestar vinna náið með frumkvöðlum fremur en að fylgjast með úr fjarlægð. „Ísland skipar stóran sess í starfsemi og framtíðaráformum LIFA Ventures. Hér á landi hefur skapast verðmæt þekking og rík hefð í greininni. Fyrirtæki á borð við Embla Medical (áður Össur), Nox Medical og Kerecis eru skýr dæmi um það hvernig íslenskt hugvit á þessu sviði hefur skarað fram úr á alþjóðavísu. Með því að fjárfesta bæði hérlendis og á hinum Norðurlöndunum vill LIFA Ventures laða hæfileikafólk og fjármagn að geiranum og hvetja frumkvöðla til frekari nýsköpunar.“ „ Markaðurinn fyrir lækningatækni er í hröðum vexti og bestu tækifærin enda iðulega hjá stórum erlendum leiðandi fyrirtækjum í geiranum. Við viljum byggja upp norrænt félag sem þekkir þennan markað til hlítar og fjárfestir af sannfæringu í bestu tækifærunum. Ísland er kjörinn útgangspunktur - sagan og fyrri árangur tala sínu máli,“ segir Jón Ingi Bergsteinsson , stofnandi LIFA Ventures.

Share this article