Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Áætla 4,7 milljarða afgang hjá ríkinu á næsta ári

Read Full Article →

Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir að ríkissjóður verði rekinn með 4.683 milljóna króna afgangi á næsta ári. Þetta yrði í fyrsta sinn í níu ár sem ríkissjóður myndi skila afgangi. „Ríkissjóður hefur verið rekinn með halla samfleytt í átta ár. Nú höfum við snúið þeim mínus í plús og fært ríkisfjármálin á traustari grunn,“ segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, í tilkynningu. „Þetta er mögulegt vegna þess að við erum að halda aftur af útgjaldavexti, bæta rekstur ríkisins og forgangsraða fjármunum í þágu velferðar og grunnþjónustu. Hallalaus fjárlög eru ekki markmið í sjálfu sér heldur forsenda þess að draga úr verðbólgu og vaxtabyrði og tryggja að ríkið geti staðið undir mikilvægri þjónustu til framtíðar.“ Í tilkynningu fjármálaráðuneytisins segir að gert sé ráð fyrir að „tekjuráðstafanir og aðrar breytingar á tekjuhlið“ skili ríkissjóði um 34 milljörðum króna árið 2027. Meðal ráðstafana eru hækkun bankaskatts og aukin gjaldtaka af ferðamönnum. Ráðuneytið segir að stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að auka skilvirkni í rekstri ríkisins sem nema samtals 44,2 milljörðum króna. Þær felist m.a. í almennu aðhaldi, fækkun stöðugilda hjá ríkinu, hagkvæmari opinberum innkaupum, einföldun á stjórnsýslu og sameiningu stofnana. „Kröfu um aðhald er dreift með hliðsjón af eðli starfseminnar, mikilvægi grunnþjónustu og svigrúmi til hagræðingar. Því er gerð minni aðhaldskrafa til heilbrigðis- og öldrunarstofnana, skóla, dómstóla og löggæslustarfsemi til að verja daglega þjónustu við almenning. Samhliða þessu aðhaldi er 28,8 milljörðum króna varið í ný og brýn verkefni sem efla samfélagið.“ Gert er ráð fyrir því að skuldir ríkissjóðs verði um 2.100 milljarðar króna í lok árs 2027, eða tæplega 38% af landsframleiðslu.

Share this article