Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári

Read Full Article →

Innlent | mbl | 7.9.2026 | 11:24 Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarp sitt í morgun. Kristrún Frostadóttir og aðrir leiðtogar meirihlutans mættu einnig. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þorsteinn Ásgrímsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Auknar álögur á almenning 8,8 milljarða aðhaldskrafa „Fjármagna hallann með skattahækkunum“ Ráðherra má selja lögreglustöðina á Hverfisgötu Kílómetragjald hækki um 15,9% » Fleiri tengdar fréttir Ný gjaldtaka á ferðaþjónustu á að skila ríkissjóði 5 milljörðum á næsta ári. Þar er horft til þess að ríkið rukki inn á ferðamannastaði sem eru í eigu ríkisins, meðal annars Þingvelli, Gullfoss og Geysi. Ekki er þó horft til þess að rukka Íslendinga en fjármálaráðherra segir landsmenn þegar hafa greitt fyrir uppbyggingu svæðanna. Bankaskattur sem á að skila auka 6 milljörðum tekur gildi um áramót. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti nýtt fjárlagafrumvarp í morgun. Þar er gert ráð fyrir hallalausum fjárlögum í fyrsta sinn síðan 2019. Gerir Daði ráð fyrir afgangi upp á 5 milljarða á næsta ári, en frá árinu 2019 hefur uppsafnaður halli ríkissjóðs numið 866 milljörðum. Skýrist það af aðgerðum í kringum faraldurinn, eldsumbrotum á Reykjanesi og fleira. 22,6 milljarðar í auknar tekjur Á fundinum í morgun fór Daði yfir nokkra tekjuliði sem gert er ráð fyrir að skili ríkissjóði auknum tekjum upp á 22,6 milljarða. Þar er stærstur bankaskattur sem á að skila auknum tekjum upp á 6 milljarða. Þá er ný gjaldtaka í ferðaþjónustu sem á að skila 5 milljörðum, kílómetragjaldið á að skila 4 auka milljörðum, breyting á virðisaukaskattsflokkun baðlóna á að skila 4 milljörðum og lækkun endurgreiðslu af virðisaukaskatti vegna íbúðarhúsnæðis á að skila 3,6 milljörðum. Hefst líklega um mitt næsta ár Spurður nánar út í hvað gjaldtaka í ferðaþjónustu þýði segir Daði að þar sé horft til að rukka inn fyrir ferðamenn við náttúruperlur sem ríkið á. „Nærtækast er þar að nefna Þingvelli, Gullfoss og Geysi, en ríkið er eigandi að mjög stórum hluta náttúruperla á Íslandi,“ segir Daði. Hann segist gera ráð fyrir að rukkun á þessa staði hefjist um mitt næsta ár, en það sé þó atvinnuvegaráðherra sem muni leggja þetta fram. Daði segir að ekki sé horft til þess að rukka eigi landsmenn, heldur fyrst og fremst ferðamenn. Segir hann að horft sé svo á að landsmenn hafi þegar greitt fyrir uppbyggingu svæðanna. Bankaskatturinn vegna óvænts verðbólgubúhnykks Varðandi bankaskattinn segir Daði að hann komi til um áramótin. Í verðbólguumhverfi væru bankarnir að fá óvæntan búhnykk og ríkið væri að sækja í það. Sagði hann raunar að verðbólga væri jafnan búhnykkur fyrir ríkissjóð líka og það skýrði áhugaleysi ríkisins á að vinna gegn verðbólgu sögulega séð. „Það er samt mikilvægt að halda því til haga að stærstur hluti af álögum á bankana er tilkominn vegna reglna Seðlabankans sem Seðlabankinn mun geta dregið til baka. Seðlabankinn hefur mun sveigjanlegri tæki en ríkið í þessum efnum,“ segir Daði og vísar til bindiskyldu og eiginfjárkröfu á bankana sem hann segir ígildi álagna á bankana. Hefur trú á samkeppni á bankamarkaði Spurður hvort hann óttist ekki að aukin skattheimta á bankana muni bara leiða til þess að þeir sæki þá fjármuni í vasa almennings segir Daði að þá væri verið að gera ráð fyrir að takmörkuð samkeppni gilti á bankamarkaði. „Ég er ekki sannfærður um að svo sé. Það hefur verið töluverð samkeppni á bankamarkaði á Íslandi sem við sjáum til dæmis á flæði á viðskiptum á milli bankanna,“ segir Daði. Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Auknar álögur á almenning 8,8 milljarða aðhaldskrafa „Fjármagna hallann með skattahækkunum“ Ráðherra má selja lögreglustöðina á Hverfisgötu Kílómetragjald hækki um 15,9% » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Myndskeið: Rými í Kórnum skírt í höfuðið á sjálfboðaliða Auknar álögur á almenning Niðurstöður PISA birtar á morgun Ráðherra má selja lögreglustöðina á Hverfisgötu Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fagnar sigri AfD: „Við munum endurheimta landið okkar“ Ráðherra má selja lögreglustöðina á Hverfisgötu Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga 8,8 milljarða aðhaldskrafa Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsakað sem alvarlegt atvik Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Varað við öflugum vindhviðum Myndir: Bangsar krýna sinn Herra Reykjavík Myndir: Heiðruðu Gunnar Þórðarson með lófataki Kílómetragjald hækki um 15,9% Hellisheiði lokað á austurleið Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Myndskeið: Rými í Kórnum skírt í höfuðið á sjálfboðaliða Auknar álögur á almenning Niðurstöður PISA birtar á morgun Ráðherra má selja lögreglustöðina á Hverfisgötu Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fagnar sigri AfD: „Við munum endurheimta landið okkar“ Kanslarinn vill banna pólitískt íslam Um 40% handtekinna erlend Hækkun bankaskatts og aukin gjöld af ferðamönnum Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsakað sem alvarlegt atvik Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Varað við öflugum vindhviðum Myndir: Bangsar krýna sinn Herra Reykjavík Myndir: Heiðruðu Gunnar Þórðarson með lófataki Kílómetragjald hækki um 15,9% Hellisheiði lokað á austurleið Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar

Share this article