Innlent | mbl | 7.9.2026 | 13:00 Innkaup ríkisins enn á ný í brennidepli Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, á fundinum í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þorsteinn Ásgrímsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Taki yfir skuldabréf vegna skerðingar auglýsingatekna Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Er að hækka álögur á heimilin og fyrirtækin Aukið hlutafé vegna Fljótaganga til skoðunar Auknar álögur á almenning » Fleiri tengdar fréttir Þótt fjármálaráðherra hafi í morgun kynnt hallalaust fjárlagafrumvarp á frumvarpið enn eftir að fara í gegnum umræðu á þinginu og svo á eftir að koma í ljós hvort áætlanir um minni útgjöld og auknar tekjur gangi eftir. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti í morgun fjárlög fyrir árið 2027, en þar er gert ráð fyrir 5 milljarða afgangi af rekstri ríkissjóðs. Væri það í fyrsta sinn í tæplega áratug sem slíkt tækist. Vongóður um að þingið sé honum sammála Spurður hvort hann sé bjartsýnn á að hallaleysið muni halda í gegnum umræður á þingi og svo að niðurskurður og auknar tekjur skili sér segir Daði að það sé eitthvað borð fyrir báru og á þar við þá 5 milljarða sem gert er ráð fyrir að verði í plús. „Ég er vongóður að þingið sé sammála mér að ríkið sé rekið hallalaust og við komum rekstri ríkisins í sjálfbært horf þannig að ég ætla að vera bjartsýnn,“ segir Daði. Spara á 44 milljarða með aðhaldsaðgerðum. Fjórir milljarðar eru almennt aðhald, fækkun stöðugilda hjá hinu opinbera á að spara 3 milljarða, en langstærsti hlutinn, eða 36 milljarðar, á að koma með „sértækum útgjaldaaðgerðum“. Voru þær hins vegar lítið útskýrðar nánar á fundinum annað en að þar væri horft til þeirra hagræðingaraðgerða sem Margar litlar aðgerðir Spurður út í aðhaldsaðgerðirnar segir hann þær vera margar litlar aðgerðir. Tekur hann fram að það sem skipti þarna miklu máli og snúi að fjármálaráðuneytinu séu bætt innkaup ríkisins. „Ríkið hefur ekki notið nægjanlega vel stærðar sinnar í innkaupum,“ segir Daði. Segir hann að ýmislegt megi gera betur í þeim efnum meðan annað hafi gengið vel. Nefnir hann að á undanförnu hafi náðst góður árangur í lyfjakaupum. Bætt stjórnun og kjör í opinberum innkaupum hafa lengi verið áherslumál fjármálaráðherra. Var þetta líka stórt atriði hjá Daða þegar hagræðingarhópurinn skilaði tillögum sínum í mars í fyrra, en þá sagði Daði að ef hægt væri að spara 2% þegar kæmi að opinberum innkaupum árlega væri hægt að ná hagræðingu upp á 30 milljarða yfir fimm ára tímabil. Var það stærsti einstaki liður hagræðingarhópsins, en samtals taldi hópurinn hægt að spara 71 milljarð yfir fimm ára tímabil. Frétt af mbl.is Gera ráð fyrir að spara ríflega 70 milljarða Áður gengið erfiðlega Áður hafði starfshópur um innkaupamál ríkisins verið stofnaður árið 2014 og sagði formaður þess hóps að ríkið hefði ekki yfirsýn yfir tugmilljarða árleg innkaup. Bjarni Benediktsson, fyrrverandi fjármálaráðherra, lagði líka áherslu á innkaupamálin í nokkrum kynningum sínum á fjárlögum. Sagði hann meðal annars að enginn væri með 190 innkaupastjóra og vísaði þar til fjölda ríkisstofnana. Taldi hann hægt að spara 2,4 milljarða árlega með betri áætlanagerð ríkisstofnana. Blaðamaður ræddi við Bjarna árið 2023, átta árum eftir þau ummæli hans og spurði um árangur af þessum innkaupamálum, en þá var einnig verið að leggja áherslu á innkaup ríkisins. Sagði Bjarni þá að aðalvandamálið væri skortur á gögnum fyrir Ríkiskaup. Þá sagðist hann þekkja til þess að ríkisforstjórar hefðu verið ósamvinnuþýðir þegar kæmi að því að ná fram sparnaði með hópkaupum. Frétt af mbl.is 2% sparnaður gæti skilað 30 milljörðum Það er því ekki gefið að árangur náist strax í innkaupamálum þrátt fyrir góðan hug, en Daði segist nú bjartsýnn á að það takist og vísar til þess að gengið hafi vel í ákveðnum málaflokkum undanfarið. Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Taki yfir skuldabréf vegna skerðingar auglýsingatekna Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Er að hækka álögur á heimilin og fyrirtækin Aukið hlutafé vegna Fljótaganga til skoðunar Auknar álögur á almenning » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Trékassi á 115 þúsund krónur Skuldir ríkissjóðs aukist um 196 milljarða Frá Val til Noregs Ennþá sumartíð fyrir austan Innkaup ríkisins enn á ný í brennidepli Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einn með alvarlegri áverka eftir slys á laugardag Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga 8,8 milljarða aðhaldskrafa Auknar álögur á almenning Mest lesið Í gær Í vikunni Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Myndir: Bangsar krýna sinn Herra Reykjavík Varað við öflugum vindhviðum Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Trékassi á 115 þúsund krónur Skuldir ríkissjóðs aukist um 196 milljarða Frá Val til Noregs Ennþá sumartíð fyrir austan Innkaup ríkisins enn á ný í brennidepli Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 8,8 milljarða aðhaldskrafa Kílómetragjald hækki um 15,9% Einn með alvarlegri áverka eftir slys á laugardag Hlutfall fyrstu kaupenda ekki meira í 19 ár Mest lesið Í gær Í vikunni Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Myndir: Bangsar krýna sinn Herra Reykjavík Varað við öflugum vindhviðum Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar