Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hækka gjöld ríkisins um 5,2%

Read Full Article →

Í fjárlag a frumvarpi fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir að krónutölugjöld ríkisins hækki um 5,2% milli ára. Fjármálaráðuneytið segir að hækkunin sé til samræmis við verðbólgu í árslok 2026 í þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands. Breytingin nær til áfengis-, tóbaks- og nikótíngjalda, kolefnisgjalds, gistináttaskatts, innviðagjalds, bifreiða- og kílómetragjalds auk útvarpsgjalds og gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra. Tekjuáhrif breytinganna á krónutölugjöldum er í heild 6,5 milljarðar króna að meðtöldum hliðaráhrifum á virðisaukaskatt. Sjá einnig Hækka kílómetragjaldið um 16% Vísitölutengingar komu til umfjöllunar á fundi Þjóðhagsráðs á fimmtudaginn síðasta. Þar var kynnt skýrsla um valkosti til að draga úr sjálfvirkum verðbreytingum. Í henni segir að æskilegt væri að opinberir aðilar myndu horfa almennt frá því að vísitölubinda gjaldskrár sínar, ekki síst í þeim tilfellum þar sem gjaldskrár eiga að fjármagna að fullu tiltekna starfsemi. Heppilegra sé að horfa til þróun raunkostnaðar í stað þess að vísitölubinda gjaldskrár. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri gerði víðtækar vísitölutengingar að umræðuefni á ársfundi Seðlabankans í vor. Hann sagði að með því að uppreikna sífellt allt verðlag með vísitölum verði verðbólga viðstöðulaus.

Share this article