Innlent | mbl | 7.9.2026 | 14:33 Mestu skattahækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þóroddur Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Áformin valda sárum vonbrigðum Segir allt stefna í verðbólguvetur Ekki sársaukalaust en nauðsynlegt Innkaup ríkisins enn á ný í brennidepli Skuldir ríkissjóðs aukist um 196 milljarða » Fleiri tengdar fréttir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, SA, segir í samtali við mbl.is að skattahækkanir sem boðaðar eru á fjárlögum, sem ríkisstjórnin kynnti í morgun, séu þær mestu síðan á tíma Jóhönnustjórnarinnar svokölluðu, sem var við völd á árunum eftir fjármálahrunið 2008. „Við erum með ástand sem einkennist meðal annars af því að hér hefur verið lítill vöxtur í verðmætasköpun og nýjustu mælingar sýna framleiðnisamdrátt. Frá sjónarhóli atvinnulífsins er mikilvægast og fyrir öllu að þetta fari að breytast,“ segir Bjarni. Rangt meðal „En þá eru kynntar til sögunnar tugmilljarða skattahækkanir sem leggjast ekki síst á verðmætaskapandi atvinnugreinar. Þetta er eins og að gefa sjúklingum rangt meðal. Við erum mjög uggandi yfir hvert stefnir með þessu áframhaldi.“ Hann segir að þetta komi til viðbótar því sem SA hafi haft áhyggjur af, sem sé að forsendur í fjármálaáætlunargerðinni væru mjög veikar. „Það slær mann mjög illa að sjá t.d. að nú eru fyrstu áhrif þess að ríkisstjórnin tengdi bótakerfið við launavísitölu að koma fram. Það birtist þannig að útgjöld ríkisins í bótakerfum hafa hækkað með launavísitölu á þessu ári og launavísitalan var úr öllum takti við verðmætasköpun í landinu. Þetta leiðir til þess að bótakerfin verða þyngri og þyngri sem er nákvæmlega það sem við vöruðum við og bætur hækka mun meira en laun.“ Líkur á harðri lendingu Bjarni segir að þessari þróun verði að fara að snúa við. „Það byrjar á því að stjórnvöld sýni verðmætaskapandi greinum á landinu skilning og skapi þeim skilyrði til að vaxa og dafna. Ég bendi á að frá árinu 2023 hefur verið mjög takmarkaður hagvöxtur á Íslandi og neikvæður vöxtur framleiðni. En laun hafa haldið áfram að hækka, ekki síst hjá hinu opinbera. Það gerðist í fyrra og aftur á þessu ári. Þannig að líkurnar á að við fáum harða lendingu eru mjög vaxandi.“ Spurður út í hagræðingu upp á tugi milljarða sem kynnt er í fjárlögunum segir Bjarni að ríkisstjórnin hafi nú stjórnað í tvö ár og haft uppi stór orð og mikil áform. „En trúverðugleikann skortir.“ Hann segir að sér finnist það sérstaklega áhyggjuefni að ríkisstjórnin hafi tekið ákvörðun um að bótakerfin haldi áfram að vaxa sjálfvirkt. „Og það eru engin ummerki um skilning á því að laun hjá hinu opinbera hafa hækkað alltof mikið. Það eru engin merki um að þessir tveir stærstu útgjaldaliðir ríkisins séu teknir alvarlega.“ Vaxandi skattbyrði Bjarni segir þetta aftur á móti viðurkennt þegar farið sé inn í tekjuskattskerfið. „Við munum sjá vaxandi skattbyrði í tekjuskatti því þau nota skortinn á framleiðni til að stöðva hækkun viðmiðunarþrepa í tekjuskattskerfinu, þ.e. þetta er spurningin um þegar þú ferð úr neðsta þrepi í næsta þrep og úr öðru þrepi í þriðja þrep. Mörkin þar á milli hafa fylgt verðlagi plús 1,5% í framleiðni. En nú segja þau að það sé svo lítil framleiðni að þau ætli að hætta að hafa þessa viðbót. Þetta veldur aukinni skattbyrði hjá öllu millitekjufólki.“ Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Áformin valda sárum vonbrigðum Segir allt stefna í verðbólguvetur Ekki sársaukalaust en nauðsynlegt Innkaup ríkisins enn á ný í brennidepli Skuldir ríkissjóðs aukist um 196 milljarða » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Göngin lokuð: Verið að draga bíl Liverpool gefst ekki upp Þjóðarhöll fær aukið fjármagn Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Þrjú skip Fisk Seafood með 291 tonn Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samstarfið við Norðurlönd treyst frekar Auknar álögur á almenning Hækkun bankaskatts og aukin gjöld af ferðamönnum Hlutfall fyrstu kaupenda ekki meira í 19 ár Mest lesið Í gær Í vikunni Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ „Fjármagna hallann með skattahækkunum“ Myndir: Bangsar krýna sinn Herra Reykjavík Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Göngin lokuð: Verið að draga bíl Liverpool gefst ekki upp Þjóðarhöll fær aukið fjármagn Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Þrjú skip Fisk Seafood með 291 tonn Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Fíkniefnaneysla í fangelsunum Hækkun bankaskatts og aukin gjöld af ferðamönnum Segir allt stefna í verðbólguvetur Mest lesið Í gær Í vikunni Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ „Fjármagna hallann með skattahækkunum“ Myndir: Bangsar krýna sinn Herra Reykjavík Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar