Innlent | mbl | 8.9.2026 | 10:50 | Uppfært 11:11 „Við ætlum ekki að hvika frá þessu setta marki“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á fundinum í morgun. mbl.is/Karítas Þorsteinn Ásgrímsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Landsliðsmaður drullar yfir ríkisstjórnina Hækkanir skella á sjúklingum Hallalaus fjárlög en auknar álögur á almenning „Og hoppaðu upp í...“ Svakalegt högg fyrir rithöfunda » Fleiri tengdar fréttir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist gera sér grein fyrir því að einhverjir séu ósáttir með einstaka gjalda- og tekjuliði í fjárlagafrumvarpinu, en að enginn græði á áframhaldandi hallarekstri hér á landi og vaxtagreiðslum upp á 150 milljarða árlega sem séu um 10% af útgjöldum ríkisins. Hún segir erfitt að stíga svona skref, en að við núverandi aðstæður sé ekki hægt að réttlæta að reka ríkið á yfirdrætti. Þetta var meðal þess sem kom fram í máli Kristrúnar á fundi forystukvenna ríkisstjórnarinnar í morgun þar sem áherslumál komandi þingvetrar voru kynnt. Ríkisútgjöldin fara undir 30% af landsframleiðslu Kristrún hóf ræðu sína á því að benda á að fyrri ríkisstjórn hefði séð fram á að geta náð hallalausum fjárlögum árið 2028, en að nú væri horft til þess að ná markmiðinu strax á næsta ári. Þessu yrði náð bæði með því að halda aftur af ríkisútgjöldum og með því að sækja auknar tekjur með gjöldum. Benti hún á að gert væri ráð fyrir að ríkisútgjöld færu í fyrsta sinn undanfarin ár undir 30% af landsframleiðslu. „Við erum að tryggja það sem er gríðarlega mikilvægt, að tekjur standi undir útgjöldum,“ sagði Kristrún. Gengur ekki að reka ríkið á yfirdrætti Hún viðurkenndi að þetta væri ekki auðvelt verk. „Eins og við sjáum á umræðunni, þá er erfitt að gera þetta. Það verður erfitt að ná þessu og það er ástæðan fyrir því að þetta hefur ekki tekist í mörg ár því það er ekki auðvelt að ná böndum á ríkisreksturinn.“ Sagði hún mikilvægasta verkefnið að ná því að ríkið væri ekki rekið með halla og að ekki yrði horfið frá því markmiði. „Það gengur ekki þegar það er 5,6% verðbólga og þegar vextir eru 8% að reka ríkið á yfirdrætti. Það eru ekki aðstæður sem kalla á það núna að við getum leyft okkur það og þess vegna er þetta það ábyrgasta sem ríkið getur gert í þessum kringumstæðum. Við erum ekki hissa á viðbrögðunum og eins og ég segi tilbúin að taka spurningar því tengdu. Ef það væri auðvelt að gera þetta þá væri löngu búið að því. En við ætlum ekki að hvika frá þessu setta marki.“ Kristrún sagði fjárlagafrumvarpið einnig senda skýr skilaboð til ríkisstofnana, undirstofnana og ráðuneyta um að þau yrðu að halda sig innan fjárlaga og ekki hvika frá settu marki. Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Landsliðsmaður drullar yfir ríkisstjórnina Hækkanir skella á sjúklingum Hallalaus fjárlög en auknar álögur á almenning „Og hoppaðu upp í...“ Svakalegt högg fyrir rithöfunda » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fjölgar hlutfallslega mest í Árneshreppi Ancelotti hrósaði Hákoni í hástert Parísarhjólið tekið niður Afhentu ráðherra um 2.500 undirskriftir Um 10 yfirheyrðir vegna banaslyssins Umræðan Farsæld í farvegi 60 milljarða skattahækkun á tveimur árum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Um 10 yfirheyrðir vegna banaslyssins Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Lækkar heimildir en tímalínan helst óbreytt Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Bilið breikkar mest á Íslandi Tæp 60% bóta fara til útlendinga „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Hækkanir skella á sjúklingum Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nýjast á mbl.is » Fjölgar hlutfallslega mest í Árneshreppi Ancelotti hrósaði Hákoni í hástert Parísarhjólið tekið niður Afhentu ráðherra um 2.500 undirskriftir Um 10 yfirheyrðir vegna banaslyssins Umræðan Farsæld í farvegi 60 milljarða skattahækkun á tveimur árum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lækkar heimildir en tímalínan helst óbreytt Skorað á Þorgerði að segja af sér Sigmundur Davíð: „Staðfesting uppgjafar“ Bilið breikkar mest á Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Bilið breikkar mest á Íslandi Tæp 60% bóta fara til útlendinga „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Hækkanir skella á sjúklingum Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Bók Evu Bjargar á meðal þeirra bestu í Bretlandi í september Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið