Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hallalaus fjárlög sleggja út af fyrir sig

Read Full Article →

„Þetta er lykilatriði núna og ábyrg stjórnvöld gera þetta, ég átta mig alveg á því að þetta er ekkert ofboðslega vinsælt en þessi ríkisstjórn er bara öðruvísi gerð.“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var gestur í Kastljósi kvöldsins. Hún fullyrti í stefnuræðu sinni á Alþingi í gær að stjórn landsins væri í traustum höndum þrátt fyrir verðbólgu og vexti og hatrammar deilur um Evrópumál síðustu vikurnar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Sleggjan umtalaða Sleggja sem Kristrún notaði í kosningamyndbandi fyrir alþingiskosningar 2024 hefur vakið mikla umræðu. Sleggjuna kvaðst hún ætla að nota til þess að negla niður vextina. Kristján Kristjánsson spurði Kristrúnu út í sleggjuna sem svaraði að hallalaus fjárlög ríkisins væru sleggja út af fyrir sig. „Það er ástæðan fyrir því að við sögðum að við ætluðum að bæta þetta efnahagsástand með því að hætta að reka ríkið á yfirdrætti.“ Það taki tíma að koma sér inn í ríkisfjármálin, þá sé það líkt og að opna vélarrúm á bíl og átta sig á því að gríðarlegir veikleikar hafi safnast upp í kerfinu. „Við erum að taka á því núna, við viljum ekki fara í mikinn niðurskurð en erum samt í útgjaldaaðhaldi.“ Skilur gremjuna yfir kílómetragjaldinu Kílómetragjald á ökutæki var samþykkt á Alþingi í lok síðasta árs. Gjaldið var hækkað í síðustu viku. Kristrún segir að lengi hafi staðið til að setja á kílómetragjald. „Seinasta ríkisstjórn lagði fram fjármálaáætlun þar sem hún var búin að eyða öllum þeim peningum fram í tímann og vilyrðum og gerði ráð fyrir hærri sértækri tekjum af ökutækjum en við – með öðrum orðum ætluðu þau að hækka kílómetragjaldið meira en við erum að gera en þau höfðu ekki kjark og þor til að laga það.“ Hægt er að sjá viðtalið við Kristrúnu í heild sinni hér í spilaranum fyrir neðan. Fréttin hefur verið uppfærð. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kallar hallalaus fjárlög ríkisins sleggju. Stjórn landsins sé í öruggum höndum þrátt fyrir verðbólgu og vexti, ábyrg stjórnvöld taki erfiðar ákvarðanir.

Share this article