Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Inga: Sárara en tárum taki

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.9.2026 | 12:25 Inga: Sárara en tárum taki Inga á blaðamannafundinum fyrir hádegi. Hún sagði þetta skipta þjóðina alla máli. mbl.is/Eggert Jóhannesson Skúli Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, segir það ljóst að Ísland skrapi botninn eftir að niðurstöður PISA-könnunarinnar voru gerðar ljósar. Greint var frá því í morgun að frammistaða barna hér á landi hefði samanlagt hrunið meira frá árinu 2015 en í nokkru öðru þeirra rúmlega 70 ríkja eða landsvæða sem horft er til í samantekt OECD. Inga boðaði til blaðamannafundar kl. 11 þar sem hún brást við tíðindunum. „Ég ætla að segja það bara eins og það er. Sumt af því sem hér hefur komið fram er jákvætt, jákvæðara heldur en kannski maður hefði þorað að vona. En annað er það bara alls ekki, það er bara svoleiðis,“ sagði Inga er hún ávarpaði fundinn. Frétt af mbl.is Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Ísland með rauða spjaldið „Og það má segja að við séum með rauða spjaldið, þegar kemur að námsárangri barnanna okkar í þeim mælikvörðum sem að PISA felur í sér. Verkefnið er ekki að endurbyggja menntakerfið frá grunni heldur ætlum við að nýta þá styrkleika sem eru til staðar,“ sagði Inga. „Við þurfum að snúa skútunni við og ég finn mikinn vilja í samfélaginu til þess að gera það. En bara svo ég nefni það sem jákvætt er í niðurstöðu PISA. Það er elja og þrautseigja barnanna okkar, hvernig þau hafa svarað þeim spurningum meira jákvætt heldur en börn í OECD-löndum almennt, að þeim líður fleirum betur heldur en gengur og gerist þar.“ Börnin séu bjartsýn á framtíðina og líði flestum vel í skólanum. Unga fólkið skori hátt í félagslegum þáttum og öðru slíku, almennt hærra en í öðrum OECD-löndum. Frétt af mbl.is Bilið breikkar mest á Íslandi „Algjört hrun“ „En við horfum ekki fram hjá því sem að sérstaklega þarf að huga að. Það er hvernig gengur börnunum okkar í skólanum, hvernig gengur okkur að mennta börnin okkar? Og skila þeim árangri sem að er stefnt: Að þau útskrifist, til dæmis úr 10. bekk, með möguleika á því að geta haldið áfram að mennta sig. Það verður að segjast eins og er að það hefur frá árinu 2015 verið algjört hrun, í orðsins fyllstu merkingu, hrun, þegar kemur að getu barnanna okkar í lesskilningi, stærðfræði og almennt í STEM-greinunum,“ sagði Inga, en STEM-greinar vísa til raungreina. „Þessu ætlum við að snúa við.“ Inga benti á að fyrir tíu árum hefði 78% nemenda verið með grunnfærni í lesskilningi. Í dag er hlutfallið 56%, þ.e. 50% hjá drengjum og 62% hjá stúlkum. Frétt af mbl.is Annan hvern dreng skortir lesskilning Ábyrgðin í ráðuneytinu „Þetta er sárara en tárum taki. Og einhvers staðar höfum við sofið á verðinum, það liggur algjörlega fyrir. Og sorglegast af því öllu er ef við ætlum að halda áfram að stinga bara höfðinu í sandinn og láta eins og allt sé í fína lagi. Það er það ekki. Við erum komin á botninn, við ætlum ekki að dvelja þar lengur. Það er ekkert framu ndan hér fyrir börnin okkar og framtíð landsins heldur en að spyrna upp. Við ætlum að spyrna við fótum, við ætlum að spyrna í þennan botn og við skulum upp á yfirborðið. En til þess að svo megi verða þá þurfum við öll að taka höndum saman. Kennarasamfélagið, foreldrarnir, ömmur og afar, svo ég tali nú ekki um þá sem bera ábyrgð og sitja í mennta- og barnamálaráðuneytinu og eru í rauninni með ábyrgð á því hvernig hlutirnir eru að þróast.“ Frétt af mbl.is Reyna að fegra sláandi niðurstöður Ákveðið að grípa inn í af festu Inga sagði engan eiga að skorast undan þeirri ábyrgð. „Vegna þess að við höfum í beinni útsendingu nákvæmlega séð þróunina og hver staðan er í dag. Það er verk að vinna. Við höfum ákveðið það, að grípa inn í þetta ástand af festu. Ég mun kalla til alla þá sem betur þekkja til en ég sjálf til þess að halda áfram að móta með okkur alvöru menntastefnu fyrir börnin okkar sem að nýtist þeim öllum.“ Hún tók fram að kraftaverki væri líkast, hversu mjög hún og Hildur Björnsdóttir borgarstjóri gengu í takt í þessum málaflokki. Boðað hafði verið að Hildur ávarpaði fundinn líka en hún forfallaðist. Sagði hún borgaryfirvöld „ætla að fylgja okkur í hvívetna og styðja við okkur í hvívetna og við ætlum að ganga saman hönd í hönd í áttina að því að koma börnunum okkar til betra náms“. Frétt af mbl.is Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Megum ekki við fleiri áföllum Inga vildi sérstaklega hrósa starfsfólki ráðuneytisins. „Ég hefði ekki trúað því að það væri annar eins vilji og annar eins áhugi til þess að taka utan um málið með okkur og snúa skútunni okkar við eins og ég er að finna núna. Hvað allir eru tilbúnir að hlaupa hraðar heldur en nánast fæturnir bera þá til þess að láta hlutina raungerast og að við snúum þessari grafalvarlegu þróun við.“ Hún sagði þetta skipta alla þjóðina máli. „Þetta litla fámenna samfélag okkar. Við megum ekki við meiri áföllum hvað þetta varðar. Við megum ekki við því að fá fleiri svona rauð flögg. En það sem kemur fram í þessari PISA-könnun er að við fórum ekki jafn hratt niður í þessari könnun eins og til dæmis hrunið var 2022 og eins og til dæmis sagan er að sýna frá 2015. Nei, við fórum ekki jafn hratt niður eins og einhver önnur Norðurlönd sem við getum borið okkur saman við. En við erum samt að skrapa botninn, við erum samt í neðsta sæti. Það er óásættanlegt og þannig viljum við ekki hafa það.“ Frétt af mbl.is Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Áfram í úrvalsdeildinni eftir allt saman? Tapa 100 milljónum á þremur árum Enga áhrifavalda við jarðarför konungs Inga: Sárara en tárum taki Grunaður um fjölmörg skemmdarverk Umræðan Farsæld í farvegi 60 milljarða skattahækkun á tveimur árum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tundurskeytum hlaðið á Íslandsmiðum Aðkoma ríkisins ekki á kostnað hallaleysis Tekjuskattur einstaklinga eykst um 3,1 milljarð Tæp 60% bóta fara til útlendinga Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Tæp 60% bóta fara til útlendinga Bilið breikkar mest á Íslandi Reyna að fegra sláandi niðurstöður Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Hækkanir skella á sjúklingum Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nýjast á mbl.is » Áfram í úrvalsdeildinni eftir allt saman? Tapa 100 milljónum á þremur árum Enga áhrifavalda við jarðarför konungs Inga: Sárara en tárum taki Grunaður um fjölmörg skemmdarverk Umræðan Farsæld í farvegi 60 milljarða skattahækkun á tveimur árum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leikstjórinn er Vestur-Íslendingur Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Höggvið á rafmagnshnút, Fljótagöng og sanngirnisbætur Hallalaus fjárlög en auknar álögur á almenning Mest lesið Í gær Í vikunni Skorað á Þorgerði að segja af sér Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis Tæp 60% bóta fara til útlendinga Bilið breikkar mest á Íslandi Reyna að fegra sláandi niðurstöður Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Hækkanir skella á sjúklingum Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Nemendur MS sameinast í sorginni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið

Share this article