Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Á von á að aðgerðir skili betri námsárangri á næsta ári

Read Full Article →

Stjórnvöld ætla að endurskoða námskrá, auka áherslu í grunnfærni í kjarnagreinum grunnskóla, auka faglegan stuðning í skólum og verja 455 milljónum króna í útgáfu námsgagna til að bregðast við versnandi frammistöðu íslenskra grunnskólabarna í PISA-könnuninni. Þetta eru meðal aðgerða sem Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, boðaði á blaðamannafundi í dag eftir að niðurstöður PISA-könnunarinnar 2025 voru birtar. „Það má segja að við séum með rauða spjaldið þegar kemur að námsárangri barnanna okkar í þeim mælikvörðum sem PISA felur í sér,“ sagði Inga á blaðamannafundinum. Versta frammistaða frá upphafi Frammistaða íslenskra grunnskólabarna í PISA-könnun hefur aldrei mælst jafn slæm og þegar könnunin var lögð fyrir í fyrra. Færni þeirra í lesskilningi, stærðfræðilæsi og vísindum hefur hrakað með hverri PISA-könnun undanfarin ár . 56% nemenda mældust með grunnhæfni í lesskilningi og 62% í stærðfræðilæsi og vísindum. Nokkuð fleiri stúlkur mældust með grunnhæfni í lesskilningi en drengir, eða 62% stúlkna á móti helmingi drengja . 63% stúlkna mældust með grunnfærni í vísindum og 60% drengja. Hlutfall drengja var örlítið hærra þegar litið var til grunnfærni í stærðfræðilæsi, eða 64% á móti 60% stúlkna. Aðeins 2-4% íslenskra nemenda mældust með afburðahæfni samanborið við 5-8% meðaltal OECD-ríkja og 6-8% meðaltal í hinum Norðurlöndunum. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á von á að matsferill 2027 sýni bættan námsárangur barna af völdum aðgerða sem hún boðaði á blaðamannafundi í morgun. Meðal þeirra eru endurskoðun námskrár og símafriður í skólum. Mæla árangur í matsferli 2027 Inga sagði miklar áskoranir vera framundan. Verkefnið væri hins vegar ekki að endurbyggja námskerfið frá grunni heldur að nýta þá styrkleika sem eru þegar til staðar. Hún sagðist eiga von á því að sjá árangur af aðgerðum stjórnvalda strax á næsta ári í niðurstöðum matsferils. Hann verður lagður fyrir íslensk börn í annað sinn næsta vor. Inga sagði að niðurstöður fyrsta matsferilsins í ár yrðu ekki birtar fyrr en að öðrum matsferli loknum. Hvaða aðgerðir boðaði Inga? Stóraukna áherslu á grunnfærni í kjarnagreinum, eða svokölluðum STEM-greinum, líkt og lestri, íslensku og vísindum. Markmiðið er að byggja upp nýja STEM-braut auk þess að efla raunvísindi. Endurskoðun námskrár með skýrari forgangsröðun. Að kenna færri viðfangsefni í grunnskóla en leggja meiri áherslu á þau. Væntingar til allra nemenda verði samræmdar og „farið í grunninn“, líkt og Inga orðaði það, til að nemendur nái raunverulegum tökum á grunnviðfangsefnum. Að 455 milljónir fari beint í gerð nýrra námsgagna auk fjárveitinga til að efla STEM-greinar. Inga nefndi nýtingu gervigreindar til að þýða erlent námsefni til að tryggja besta námsefni sem völ er á. „Símafrið“ í skólum. Inga kveðst binda hvað mestar vonir við þessa aðgerð og segir hana til þess fallna að draga úr áreiti í daglegu umhverfi barna og sporna gegn áhættuhegðun. Átak í starfsþróun kennara. Aukinn faglegan stuðning við skóla landsins með áherslu á að huga að nemendum af erlendum uppruna. Inga sagði þurfa fleiri kennara sem sérhæfa sig í að kenna íslensku sem annað tungumál. Aukna sérhæfingu kennara og gera kennaranám meira spennandi og skilvirkara. „Algjört hrun í orðsins fyllstu merkingu“ „Verkefnið er ekki að endurbyggja menntakerfið frá grunni heldur nýta þá styrkleika sem eru til staðar. Við þurfum að snúa skútunni við og ég finn mikinn vilja í samfélaginu til að gera það,“ sagði Inga. „Það verður að segja eins og er að það hefur frá árinu 2015 verið algjört hrun í orðsins fyllstu merkingu, hrun, þegar kemur að getu barnanna okkar í lesskilningi, stærðfræði og almennt í STEM-greinunum. Þessu ætlum við að snúa við.“ Íslensk grunnskólabörn mældust sterkari þegar litið var til félagslegra þátta líkt og þrautseigju, lífsánægju og öryggis. „Börnin okkar eru jákvæðari,“ sagði Inga á blaðamannafundinum. Fjallað var um niðurstöður PISA-könnunarinnar og blaðamannafundinn í lifandi fréttavakt sem má sjá í heild sinni hér fyrir neðan:

Share this article