Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aþena laðar til sín einn stærsta vogunarsjóð heims

Read Full Article →

Einn stærsti vogunarsjóður heims, Millennium Management, áformar að opna skrifstofu í Aþenu, höfuðborg Grikklands, samkvæmt heimildarmönnum Financial Times . Ákvörðunin er rakin til skattalegra hvata sem grísk stjórnvöld kynntu í sumar sem eru sérstaklega miðaðir að stjórnendum framtakssjóða og vogunarsjóða. Millennium, sem er með höfuðstöðvar í New York, er með 97 milljarða dala í eignir í stýringu og alls starfa um 7.000 mann hjá vogunarsjóðnum. Einn æðsti fjárfestingarstjóri Millenium, Rahul Chopra, undirbýr nú flutninga frá London til Aþenu. Grikkland bauð þegar upp á hagstætt skattakerfi fyrir erlenda einstaklinga sem gerir þeim kleift að halda erlendum tekjum og eignum utan gríska skattkerfisins gegn 100 þúsund evra árgjaldi, eða sem samsvarar 14 milljónum króna. Ofangreindar breytingar á skattkerfinu fela í sér að erlendir sérfræðingar sem uppfylla ákveðin skilyrðin og flytja til Grikklands greiða 5 prósent skatt af bónusum og hlutdeild í hagnaði (e. carried interest) - þ.e. hlutdeild fjárfestingastjóra í hagnaði viðkomandi sjóðs af viðskiptum - samanborið við almennt 15 prósenta skatthlutfall. Til að uppfylla kröfur kerfisins þurfa viðkomandi aðilar að vera með raunverulega starfsemi í landinu og sýna fram á rekstrarkostnað upp á 3 milljónir evra eða um 420 milljónir króna á ári. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í gær hefur milljarðamæringurinn Christopher Rokos, stofnandi vogunar­sjóðsins Rokos Capi­tal Mana­gement, einnig ákveðið að flytja skatta­lega heimilis­festi sína frá Bret­landi til Grikk­lands. Sjá einnig Þriðji hæsti skatt­greiðandi Bret­lands kveður landið

Share this article