Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fáir bera hitann og þungann á markaðnum

Read Full Article →

Til­tölu­lega fá­mennur hópur einka­fjár­festa ber hitann og þungann af beinni einka­fjár­festingu á ís­lenska hluta­bréfa­markaðnum og eignar­haldið er mjög samþjappað í sjávarút­vegs­félögunum. Á sama tíma hefur velta á markaðnum dregist veru­lega saman og Jón Finn­boga­son, fram­kvæmda­stjóri Stefnis, segir ekki sjálf­gefið að ís­lenski markaðurinn geti til lengri tíma byggst að veru­legu leyti á fáum stórum einka­fjár­festum og líf­eyris­sjóðum. Þetta kemur fram í nýju hálfsárs­bréfi Jóns til eig­enda sjóða Stefnis þar sem hann fer ítar­lega yfir stöðu ís­lenska hluta­bréfa­markaðarins, eignar­hald, inn­lán heimilanna og horfur í hag­kerfinu. „Markaðurinn hér á landi stríðir einnig við áskoranir þegar kemur að sam­setningu fjár­festa,“ skrifar Jón og segir ein­stak­linga og aðra einka­fjár­festa gegna mikilvægu hlut­verki í áfram­haldandi þróun markaðarins. Þeir leggi eigið fé undir, fylgi sann­færingu sinni eftir og veiti stjórn­endum skráðra félaga meðal annars aðhald með virkri þátt­töku á hlut­hafa­fundum og stjórnar­setu. Aðeins tvö félög utan sjávarút­vegs með meiri­hluta einka­fjár­festa Stefnir tók saman eignar­hald 20 stærstu hlut­hafa í 22 skráðum félögum. Markaðsvirði félaganna var sam­kvæmt bréfinu um 1.816 milljarðar króna í lok júlí og áttu tuttugu stærstu hlut­hafar hvers félags saman­lagt tæp­lega 80% markaðsvirðisins. Hlutur einka­fjár­festa innan þessa hóps var metinn á 439 milljarða króna, eða rúm 24% af markaðsvirði félaganna. Líf­eyris­sjóðir fóru hins vegar með um 43% og aðrir fag­fjár­festar rúm 11%. Tölurnar sýna þó enn meiri samþjöppun en heildar­hlut­fallið gefur til kynna. Áskrifendur geta lesið ítarlega umfjöllun Viðskiptablaðsins um málefnið hér.

Share this article