Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Velta minnkað um nær þriðjung að leiðréttingu lokinni

Read Full Article →

Til­tölu­lega fá­mennur hópur einka­fjár­festa ber hitann og þungann af beinni einka­fjár­festingu á ís­lenska hluta­bréfa­markaðnum og eignar­haldið er mjög samþjappað í sjávarút­vegs­félögunum. Á sama tíma hefur velta á markaðnum dregist veru­lega saman og Jón Finn­boga­son, fram­kvæmda­stjóri Stefnis, segir ekki sjálf­gefið að ís­lenski markaðurinn geti til lengri tíma byggst að veru­legu leyti á fáum stórum einka­fjár­festum og líf­eyris­sjóðum. Þróun veltu styður að mati Stefnis við áhyggjurnar af seljan­leika markaðarins. Á fyrri helmingi ársins dróst velta á inn­lendum hluta­bréfa­markaði saman um 45% frá sama tíma­bili í fyrra. Gögnin sem liggja að baki bréfinu sýna að heildar­velta fór úr um 659 milljörðum króna á fyrri árs­helmingi 2025 í tæpa 363 milljarða á sama tíma­bili í ár. Saman­burðurinn skekkist þó af stórum ein­skiptis­við­skiptum árið áður. Þegar leiðrétt er fyrir við­skiptum tengdum Ís­lands­banka og JBTM nemur sam­drátturinn tæp­lega 30%; leiðrétt velta fer úr um 518 milljörðum í 363 milljarða króna. „Seljan­leiki er hluti af þeim þáttum sem fjár­festar horfa til. Af þeirri ástæðu erum við hugsi yfir þessari þróun, sér í lagi ef hún heldur áfram,“ skrifar Jón. Ís­lenski hluta­bréfa­markaðurinn hefur einnig átt undir högg að sækja í ár. OMXI15GI-vísi­talan hafði lækkað um 4,3% frá áramótum til 27. ágúst. Jón segir það ekki endi­lega endur­spegla veikan rekstur skráðra félaga heldur meðal annars sam­setningu markaðarins og harða sam­keppni hluta­bréfa við aðra eigna­flokka í núverandi há­vaxta­um­hverfi. Sjá einnig Fáir bera hitann og þungann á markaðnum Inn­lán heimilanna nær tveimur þúsund milljörðum Einn stærsti keppi­nautur verðbréfa­markaðarins um fjár­magn heimilanna eru inn­lán. Inn­lán heimilanna námu 1.970 milljörðum króna í lok júní og hafa vaxið mikið undan­farin ár. Sú aukning hefur þó að veru­legu leyti verið hjá eldra fólki. Á árunum 2021 til 2024 kom rúm­lega 55% allrar hækkunar inn­lána ein­stak­linga frá fólki 60 ára og eldra. „Þegar litið er til stöðu inn­lána er­lendis og í hvaða aldurs­hópum inn­lán eru fyrst og fremst að vaxa, þá má ætla að inn­lán sem eigna­flokkur sé kominn til að vera og hann mun að öllum líkindum hækka sem hlut­fall af VLF og ólík­lega streyma í miklum mæli inn á aðra eigna­markaði í bráð,“ segir Jón. Það setur markaðinn í nokkuð aðra stöðu en ef gengið væri út frá því að tæp­lega tvö þúsund milljarða króna inn­lána­stafli heimilanna biði þess ein­fald­lega að vextir lækkuðu áður en fjár­magnið flæddi yfir í hluta­bréf. Sjá einnig Aðeins tvö félög utan sjávarút­vegs með meiri­hluta einka­fjár­festa

Share this article