Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknar og formaður borgarráðs, segir að fyrstu dagar nýs meirihluta hafi verið krefjandi og ráðist hafi verið í erfiðar aðgerðir og breytingar. „Það er enginn sem fær neina einustu gleði eða gerir það af einhverri hugmyndafræðilegri ánægju að segja upp fólki. Það er alls ekki þannig – en þetta voru gríðarlega nauðsynlegar breytingar á stjórnskipulagi borgarinnar.“ Hann segir það alltaf umdeilt þegar ráðist er í breytingar sem þessar. Hann telur þó að íbúar í borginni séu ánægðir með störf meirihlutans Einar var til viðtals í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Segir þjónustu við börn ekki skerta Formaður Sameykis gagnrýndi á dögunum að forstöðumenn félagsmiðstöðva væru færðir til í starfi og fjær börnunum. Einar telur að breytingarnar hafi ekki í för með sér þjónustuskerðingu fyrir börn. Þvert á móti vonast hann til að þjónustan batni. Hann segir að ekki sé verið að breyta starfsemi félagsmiðstöðva eða frístundaheimila heldur felist breytingarnar í því að færa stjórnun, umsýslu og fjármálaráðgjöf út úr hverfismiðstöðvunum. „Við erum að leggja þær niður og færa þessi verkefni inn í Borgartún og vinna þau miðlægt. Í þeim breytingum – þegar við lögðum niður fjórar starfsstöðvar – sáum við að það væri tilefni til að fækka starfsfólki, sameina betur verkefni og búa öðruvísi utan um þessa stoðþjónustu við frístundaheimilin.“