Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

222 milljóna halli í Kópavogi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 10.9.2026 | 14:43 222 milljóna halli í Kópavogi Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir að verðbólga og háir vextir hafi þrengt að ráðstöfunartekjum heimila víða um land og því hafi Kópavogsbær lagt ríka áherslu á að verja hagsmuni íbúa og tryggja stöðugleika í fjármálum heimilanna. mbl.is/María Setja bókamerki Rekstrarniðurstaða A-hluta Kópavogsbæjar er neikvæð um 222 milljónir króna samanborið við 485 milljóna króna áætlaðan halla og er niðurstaðan því 263 milljónum krónum betri en áætlun gerði ráð fyrir. Neikvæð rekstrarniðurstaða skýrist af aukinni verðbólgu en um síðastliðin áramót voru 84,5% skulda Kópavogsbæjar verðtryggðar og hreyfast því í takt við þróun verðbólgu, að því er bærinn greinir frá í tilkynningu . Árshlutareikningur Kópavogsbæjar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026 var lagður fram í bæjarráði Kópavogs í dag. 112 milljóna halli á samstæðunni Fram kemur að rekstrarniðurstaða samstæðu Kópavogsbæjar, A- og B-hluta, sé 306 milljónum krónum betri en gert hafi verið ráð fyrir í áætlunum. Samstæðan sé hins vegar neikvæð um 112 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins sem skýrist af fjármagnsgjöldum sem eru umfram áætlanir vegna aukinnar verðbólgu. Áætlanir gerðu ráð fyrir 418 milljóna króna rekstrarhalla á samstæðunni. Þá segir að heildarskuldir og skuldbindingar bæjarins lækki að raunvirði á fyrstu sex mánuðum ársins. Neikvæða rekstrarniðurstöðu megi því rekja til reiknaðra fjármagnsliða en ekki reksturs á grunnþjónustu bæjarins. Veltufé frá rekstri samstæðunnar nam 2,5 milljörðum króna á tímabilinu og handbært fé frá rekstri 1,1 milljarði króna. Framlegð samstæðunnar var 3,8 milljarðar króna eða 12,1% af rekstrartekjum fyrir lífeyrisskuldbindingu og 3 milljarðar króna eða 9,7% af rekstrartekjum þegar tekið er tillit til lífeyrisskuldbindinga. Þessar tölur gefa mikilvæga mynd af styrk rekstrarins og getu hans til að standa undir fjárfestingum, afborgunum skulda og framtíðaruppbyggingu, að því er bærinn segir. Árshlutareikningur Kópavogsbæjar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026 var lagður fram í bæjarráði Kópavogs í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Grunnreksturinn traustur Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir í tilkynningunni að þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður með hækkandi vöxtum og þrálátri verðbólgu sýni uppgjörið að grunnrekstur Kópavogsbæjar standi traustum fótum. Sé horft fram hjá fjármagnsliðum sé rekstur grunnþjónustu sveitarfélagsins á fyrstu sex mánuðum ársins mun betri en áætlanir hafi gert ráð fyrir. „Sterk staða Kópavogsbæjar er afrakstur markvissrar forgangsröðunar, hagræðingar og ábyrgra ákvarðana í rekstri sveitarfélagsins. Veltufé frá rekstri er lykilstærð í rekstri sveitarfélaga og nam 2,5 milljörðum króna á tímabilinu. Sú niðurstaða sýnir að reksturinn skapar áfram verulegt svigrúm til fjárfestinga, niðurgreiðslu skulda og áframhaldandi uppbyggingar í bænum. Áhrif aukinnar verðbólgu og hækkandi vaxta eru hins vegar umtalsverð og hafa þung áhrif á reiknaða fjármagnsliði og þar með rekstrarniðurstöðu tímabilsins. Á árunum 2024 og 2025 var reksturinn að skila einni bestu afkomu í 18 ár og árshlutauppgjör 2026 gefur vísbendingu um að reksturinn verði áfram sögulega sterkur,“ er haft eftir bæjarstjóranum í tilkynningunni. Mikilvægt að aðrir stígi áþekk skref Þá segir Ásdís að verðbólga og háir vextir hafi þrengt að ráðstöfunartekjum heimila víða um land og því hafi Kópavogsbær lagt ríka áherslu á að verja hagsmuni íbúa og tryggja stöðugleika í fjármálum heimilanna. Fasteignagjöld hafi lækkað að raunvirði síðustu ár og séu þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu. Þá hafi Kópavogsbær tilkynnt fyrr á árinu að gjaldskrárhækkanir á árinu 2026 yrðu takmarkaðar við 2,5% á barnafjölskyldur til að standa vörð um ráðstöfunartekjur þeirra og stuðla að friði á vinnumarkaði. Að sögn Ásdísar er mikilvægt að aðrir opinberir aðilar stígi áþekk skref enda gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir íslenskt samfélag að ná tökum á verðbólgunni þannig að vextir geti lækkað á ný. „Ábyrg fjármálastjórn með skynsamlegri forgangsröðun er forsenda þess að unnt sé að veita áfram góða þjónustu til bæjarbúa. Við munum áfram leggja áherslu á að skila ábata af góðum rekstri til íbúa í formi lægri fasteignagjalda, hóflegra gjaldahækkana og bættrar þjónustu,“ er enn fremur haft eftir Ásdísi. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hermann tekur við sameinuðu félagi Angelina Jolie á tímamótum í lífinu Viskí til bjargar villtum stofnum 222 milljóna halli í Kópavogi Rodri baðst afsökunar á ummælum sínum Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Birta ekki dóma yfir sjálfum sér Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » Hermann tekur við sameinuðu félagi Angelina Jolie á tímamótum í lífinu Viskí til bjargar villtum stofnum 222 milljóna halli í Kópavogi Rodri baðst afsökunar á ummælum sínum Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Nú blasir við verðbólguvetur“ Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð „Þetta er nú meira ástandið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Heiðruðu Harald konung og settu met Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Ekki upplýst um söluheimild á flugstöðinni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur

Share this article