Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Halli hjá Kópavogi en skuldir lækka að raunvirði

Read Full Article →

A-hluti Kópavogsbæjar var rekinn með 222 milljóna króna halla á fyrstu sex mánuðum ársins. Afkoman var 262 milljónum betri en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir. Afkoman versnaði um nærri 4,5 milljarða milli ára sem skýrist þó af milljarða sölu byggingarrétta á sama tímabili í fyrra. Rekstrarniðurstaða samstæðu Kópavogsbæjar, A- og B-hluta, var neikvæð um 111 milljónir króna, en var þó 306 milljónum krónum betri en gert var ráð fyrir í áætlunum. Í tilkynningu Kópavogsbæjar er hallarekstur á fyrri árshelmingi rakinn til fjármagnsgjalda sem voru umfram áætlanir vegna aukinnar verðbólgu. Um síðastliðin áramót voru 84,5% skulda Kópavogsbæjar verðtryggðar og hreyfast því í takt við þróun verðbólgu. „Heildarskuldir og skuldbindingar bæjarins lækka hins vegar að raunvirði á fyrstu sex mánuðum ársins. Neikvæða rekstrarniðurstöðu má því rekja til reiknaðra fjármagnsliða en ekki reksturs á grunnþjónustu bæjarins.“ „Þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður með hækkandi vöxtum og þrálátri verðbólgu sýnir uppgjörið að grunnrekstur Kópavogsbæjar stendur traustum fótum. Sé horft framhjá fjármagnsliðum er rekstur til grunnþjónustu sveitarfélagsins á fyrstu sex mánuðum ársins mun betri en áætlanir gerðu ráð fyrir,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir , bæjarstjóri Kópavogs. Hún segir veltufé frá rekstri vera lykilstærð í rekstri sveitarfélaga en það hafi numið 2,5 milljörðum króna á tímabilinu. „Sú niðurstaða sýnir að reksturinn skapar áfram verulegt svigrúm til fjárfestinga, niðurgreiðslu skulda og áframhaldandi uppbyggingar í bænum.“ Skatttekjur samstæðunnar námu 22,2 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins og voru um 474 milljónum krónum yfir áætlun. Í sögulegu samhengi falli um 47-49% af skatttekjum sveitarfélagsins til á fyrri helmingi ársins en 51-53% á þeim síðari, sem endurspeglar hefðbundið tekjuflæði bæjarins yfir árið. Heildarskuldir og skuldbindingar samstæðunnar námu 59,2 milljörðum króna í lok júní og höfðu hækkað um 940 milljónir króna frá áramótum. Bæjarfélagið segir að þar vegi verðbólguáhrif þungt, en verðbætur á skuldum námu um 1.245 milljónum króna og lífeyrisskuldbinding hækkaði um 258 milljónir króna á tímabilinu. „Þetta þýðir að á raunvirði hafa skuldirnar lækkað um 563 milljónir króna.“

Share this article