Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 10.9.2026 | 23:05 Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Berglind segist varla hafa undan við að leiðrétta þessa þrautseigu mýtu. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/Hallur Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Megi skoða hvort stoppa eigi slakari nemendur af Brotalöm í kennslu erlendra barna Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Fullmikil áhersla á vellíðan á kostnað annarra þátta Áhugaleysi ekki skýring sem stenst » Fleiri tengdar fréttir Dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands og einn höfunda Landsskýrslu Íslands fyrir PISA segir það þrauteiga mýtu sem alltaf komi upp, að val annarra landa á nemendum til þátttöku í PISA-könnunum hafi áhrif á niðurstöðurnar. Og vegna fámennis komi Ísland verr út í samanburðinum. 1.000 manna úrtak tekið úr 300 þúsund manna þjóð sýni sömu nákvæmni og 1.000 manna úrtak úr 300 milljón manna þjóð, sé það valið með réttum hætti. Myndin sem fylgir þessari frétt hefur verið í deilingu á samfélagsmiðlum og einhverjir deilendur hafa lýst furðu sinni á því að svo stór hluti íslenskra 15 ára nemenda taki prófið, eða 78 prósent, samanborið við örlitla prósentu í flestum öðrum ríkjum. Spurt hefur verið hvort hægt sé að réttlæta framkvæmdina og hvort niðurstöðurnar gefi rétta mynd stöðunni þegar næstum allur 15 ára árgangurinn hér á landi tekur þátt. Einhverjir hafa jafnvel viljað meina að nemendur í öðrum löndum séu handvaldir þannig niðurstöðurnar komi betur út. Uppruni myndarinnar er óþekktur en hún sýnir áætlaðan fjölda 15 ára nemenda í landinu, fjölda þeirra sem þreyttu prófið og hlutfall þeirra 15 ára sem tóku prófið. Þessi mynd, sem er í deilingu á samfélagsmiðlum, sýnir fjölda nemenda sem tóku prófið í nokkrum ríkjum. Ljósmynd/Facebook Lönd stjörnumerkt „Þetta er mjög þrautseig mýta sem kemur alltaf upp í hvert einasta skipti, að önnur lönd velji sína nemendur til þátttöku og allir þurfi að taka þátt hjá okkur, en það er ekki þannig. Við erum bara undir lágmarksfjölda PISA og þess vegna eru allir sem taka þátt hjá okkur. 99% skóla tóku þátt og um 83% nemenda í PISA-árgangnum,“ segir Berglind Gísladóttir, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands, í samtali við mbl.is. Um 17% nemenda fá undanþágu frá því að taka þátt af ýmsum ástæðum, til dæmis vegna námsörðugleika, eða jafnvel vegna undanþágu frá mætingu í skóla. Hlutfallið er mjög svipað í öllum löndum sem taka þátt. Frétt af mbl.is Bilið breikkar mest á Íslandi Að sögn Berglindar eru mjög strangar reglur um það hvernig úrtök eru valin í löndum. Segir hún um einskonar klasaúrtak að ræða, en erfitt sé að útskýra valið á auðveldan hátt. „Þetta fylgir mjög ströngum vísindalegum skilyrðum og ef að lönd af einhverjum ástæðum víkja frá þeim reglum sem settar eru hjá OECD þá eru þau stjörnumerkt og ekki í samanburðinum,“ útskýrir hún. Hvernig nemendur eru valdir til þátttöku hafi því engin áhrif á niðurstöðurnar og ekkert með árangurinn að gera. Frétt af mbl.is Brotalöm í kennslu erlendra barna Væri óréttlátt fyrir alla Ekki sé því hægt að skýra slakan árangur íslenskra nemenda með því að vísa til úrtaksins, en um fjórði hver nemandi sem tók prófið á síðasta ári náði ekki grunnfærni í lesskilningi, náttúruvísindum og stærðfræði. Ekkert land hefur fallið jafn mikið og Ísland frá árinu 2015. „Það er valið með þeim hætti að það á að vera fullkomlega lýsandi fyrir nemendahópinn í því landi. Ef fólk væri búið að fara í aðferðafræði myndi það vita að úrtak úr 300 þúsund manna þjóð, eins og við erum, er nánast sama nákvæmni og þúsund manna úrtak úr 300 milljóna manna þjóð, ef það er valið með réttum hætti, sem er gert í PISA-löndum,“ segir Berglind en hún hefur undan við að reyna að leiðrétta þennan misskilning á netinu. Frétt af mbl.is Reyna að fegra sláandi niðurstöður „Ef PISA-prófið væri óréttlátt fyrir okkur, þá væri það óréttlátt fyrir alla. Líka hvað varðar fjölda útlendinga, það eru útlendingar alls staðar annars staðar líka. Við ættum frekar að einblína á hvað við getum við gert til þess að efla okkur og bera okkur saman við okkur sjálf.“ Berglind segir ljóst að margir séu að misskilja myndina og túlka hana á annan hátt en upphaflegi tilgangurinn var. Henni virðist myndin hafa verið sett fram til útskýringar svo fólk sæi að þátttökuhlutfallið væri mjög svipað. Uppruni myndarinnar liggur þó ekki fyrir, líkt og áður sagði. Frétt af mbl.is Afburðanemendum fækkar og færri ná grunnhæfni Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Megi skoða hvort stoppa eigi slakari nemendur af Brotalöm í kennslu erlendra barna Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Fullmikil áhersla á vellíðan á kostnað annarra þátta Áhugaleysi ekki skýring sem stenst » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fimm drepnir í árás Rússa á verslunarmiðstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu „Mér er mjög umhugað um þetta“ Hraunar yfir gróft Liverpool-lið Skellur fyrir leikmann United Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heitasti mánuður sem mælst hefur um allan heim Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni 3,2 milljarða halli á rekstri borgarinnar Undrast röksemdafærslu ráðherra Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Eldur í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Nýjast á mbl.is » Fimm drepnir í árás Rússa á verslunarmiðstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu „Mér er mjög umhugað um þetta“ Hraunar yfir gróft Liverpool-lið Skellur fyrir leikmann United Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafa þróað aðferð sem virkar fyrir alla 3,2 milljarða halli á rekstri borgarinnar Svona gæti gervigreind nýst á hjúkrunarheimilum Vilja gera altjóna hús að ferðamannastað Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Eldur í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu

Share this article