Thelma Björg Björnsdóttir og Sonja Sigurðardóttir syntu báðar í undanrásum í 50 metra skriðsundi á Evrópumóti fatlaðra í Tyrklandi í morgun. Þær eru báðar komnar í úrslit í greininni. Thelma Björg kemur inn í úrslitin með 8. besta tímann í sínum flokki, hún synti á 41,58 sekúndum. Hún keppir einnig í úrslitum 100 metra bringusundsins í kvöld, þau úrslit hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma, úrslitin hennar í skriðsundi klukkan 15:51. Sonja var með 5. besta tímann í morgun í sínum flokki eða 1:15,24. Hún syndir klukkan 16:22 að íslenskum tíma í kvöld. Hægt er að horfa á úrslitin á Youtube-síðu Ólympíusambands fatlaðra .