Evrópumót fatlaðra í sundi stendur yfir frá 7. til 12. september í Tyrklandi þessa dagana. Þrír íslenskir keppendur eru skráðir til leiks. Thelma Björg Björnsdóttir synti í morgun í 100 metra skriðsundi og synti á 1:32,42. Hún varð í 9. sæti, hársbreidd frá úrslitum og er fyrsti varamaður inn í úrslit í kvöld ef einhver skyldi heltast úr lestinni. Áttunda sætið var á 1:31,59. Sonja Sigurðardóttir og Róbert Ísak Jónsson keppa einnig á mótinu. Þau synda bæði á morgun í undanrásum í sínum greinum. Sonja keppir í 100 metra skriðsundi og Róbert Ísak í 100 metra bringusundi. Hér má sjá keppnisdagskrá og niðurstöður.