Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 14 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Göng og brú ráða Guðmund Daða sem forstjóra Brynjólfur Þór Guðmundsson Guðmundur Daði Rúnarsson hefur verið ráðinn forstjóri innviðafélagsins Ganga og brúar ohf. Fyrirtækið á að fjármagna framkvæmdir á samgöngumannvirkjum og taka að sér uppbyggingu innviða. Guðmundur Daði var áður framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli og vann að uppbyggingu og framkvæmdum flugvallarins í áratug. Guðmundur Daði Rúnarsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 mínútumÍÞRÓTTIR Sund Thelma Björg og Sonja báðar í úrslitum í dag Sundkonurnar Thelma Björg Björnsdóttir og Sonja Sigurðardóttir eru báðar komnar í úrslit í 50 metra skriðsundi á Evrópumóti fatlaðra í dag. Thelma keppir einnig í úrslitum 100 metra bringusundsins. Fyrir 7 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Farið fram á fimm ára fangelsi í Höfðatorgsmálinu Saksóknari fer fram á fimm ára fangelsisdóm yfir sakborningum í Höfðatorgsmálinu. Málflutningur fer fram á lokadegi aðalmeðferðar málsins í héraðsdómi í dag. Fyrir 28 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál „Erum ennþá með þannig samfélag að við viljum kenna ýmislegt“ Það er nauðsynlegt að einfalda aðalnámskrá grunnskóla, segir formaður Kennarasambands Íslands og tekur þar undir orð Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Fyrir 38 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Sigrún Ósk og Guðmundur Páls stýra nýjum spurningaþætti Sveitarfélögin mætast í spurningaþáttunum Landsleikunum sem hefjast á RÚV í september. Fyrir 51 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Aðhafast ekki vegna lögreglu sem skipaði manni að eyða myndbandsupptöku Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu telur ekki tilefni til að aðhafast nokkuð vegna framgöngu lögreglu sem skipaði sjónarvotti að eyða upptöku af handtöku manns sem hafði hellt yfir sig eldsneyti. Lögregla beitti rafbyssu. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Noregur Breytingar á norsku ríkisstjórninni Oddur Þórðarson Nokkrar breytingar verða gerðar á ráðherraliði norsku ríkisstjórnarinnar í dag. Norska ríkisútvarpið, NRK, segir að ráðherrum samgöngumála, umhverfis- og loftslagsmála, háskólamála og stjórnsýslumála verði skipt út. Þá mun einn ráðherra flytjast milli ráðuneyta. Hákon VIII konungur kynnir ríkisstjórninni breytingarnar fyrir hádegi í dag og svo kemur ný ríkisstjórn saman á fundi eftir hádegi. Stjórnmálaskýrandi NRK segir breytingarnar „sumpart leiðinlegar“. Tæpur mánuður er í að norska ríkisstjórnin kynni fjárlög næsta árs. Mörgum þykir of mikil höfuðborgarslagsíða í nýrri ríkisstjórn. NRK segir að sex ráðherrar séu frá Osló, eða þriðjungur. Jonas Gahr Store, forsætisráðherra Noregs. EPA / FREDERIK RINGNES Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar „Ég mun gera allt til að þér verði stútað“ Karlmaður fékk níu mánaða dóm fyrir að ofsækja fyrrverandi sambýliskonu sína og ógna börnum hennar. Sex af níu mánuðum eru skilorðsbundnir. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Dísillinn aldrei dýrari í Bandaríkjunum Brynjólfur Þór Guðmundsson Gallonið af dísil er komið yfir sex dollara í Bandaríkjunum og er það í fyrsta skipti sem það gerist, að því er bifreiðaeigendasamtökin AAA greina frá. Eldsneytisverð hefur hækkað mikið vegna stríðs Bandaríkjanna og Írans. Gallon er um 3,8 lítrar. Dísill er mikið notaður í vöruflutninga á vegum, landbúnað og byggingarstarfsemi. Kona dælir eldsneyti á bíl í Los Angeles. EPA / CHRIS TORRES Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Kosið í Svíþjóð á sunnudag - mjótt á munum og stefnir í langa ríkisstjórnarmyndun Þingkosningar fara fram í Svíþjóð á sunnudag. Fyrir nokkrum viku voru allar líkur á valdaskiptum í landinu eftir kosningarnar, en nú er mun tvísýnna hvernig kosningarnar fara. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Telur að utanríkismálanefnd hefði átt að heyra fyrr af samtali Bjarna og Trump Varaformaður utanríkismálanefndar segir að betra væri ef nefndin hefði verið upplýst fyrr um símtal Donalds Trumps og Bjarna Benediktssonar, þáverandi forsætisráðherra, stuttu fyrir síðustu þingkosningar. Trúnaður ríki um það sem nefndin ræddi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Minningarathöfn um Hönnuh Jane Brynjólfur Þór Guðmundsson Minningar- og þakkarstund verður haldin í Áskirkju í Reykjavík á morgun vegna Hönnu Jane Large sem lést í bílslysinu við Krýsuvíkurveg 31. ágúst. Ása Björk Ólafsdóttir prestur sér um stundina sem fer fram á ensku. Hanna Jane var ein þriggja sem létust í bílslysinu. Hún var skiptinemi á Íslandi. Móðir hennar sagði í athugasemd við færslu Höllu Tómasdóttur forseta um slysið að lífsgleðin hefði skinið af dóttur sinni síðast þegar þær ræddu saman. Hún sagði að síðustu dagarnir hefðu verið mestu hamingjudagar lífs hennar. Fjöldi fólks minntist ungmennanna á slysstað. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Kristrún ætlar að ræða við Trump um samskipti ríkjanna Forsætisráðherra segir það angra sig og væntanlega alla Íslendinga hvernig Bandaríkjaforseti tali um Ísland og nágrannalönd. Hún ætlar að ræða samskipti ríkjanna við Trump þegar hún hittir hann síðar í mánuðinum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Breytilegar áttir Það hvessir nokkuð norðvestantil á landinu þegar líður á daginn en annars verður nokkuð rólegt veður. Víða nokkur væta. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Sundursprengdu hafmeyjarbrotin sem eru í dag stofustáss Brot úr Hafmeyjunni, höggmynd Nínu Sæmundsson, hurfu úr geymslu Listasafns Reykjavíkur í kringum síðustu aldamót og enduðu á Suðureyri hjá fjölskyldu Nínu. Fjölskyldan segir að það hafi átt að farga brotunum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin 25 ár frá mannskæðustu hryðjuverkaárásum sögunnar Í dag er þess minnst að 25 ár eru liðin frá hryðjuverkaárásunum í Bandaríkjunum 11. september 2001. Þessar skelfilegu árásir mörkuðu djúp sár í þjóðarsál Bandaríkjamanna og mun víðar. Heimsmyndin breyttist og tilveru fólks var snúið á hvolf. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: Afturelding og Breiðablik berjast um bikarinn Breiðablik og Afturelding mætast í kvöld í úrslitaleik Mjólkurbikars karla í fótbolta. Breiðablik hefur einu sinni orðið bikarmeistari en Afturelding gerir atlögu að sínum fyrsta titli. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á RÚV 2. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Óskar eftir því að verða færð úr fangelsi í stofufangelsi Fyrrum forsetafrú Venesúela, Cilia Flores, hefur óskað eftir því að vera færð úr fangelsi í stofufangelsi vegna slæmrar heilsu. Flores og fyrrum forseti Venesúela, Nicolas Maduro, hafa setið í fangelsi í Bandaríkjunum síðan í janúar. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Lögfræðingur Musks hótar málaferlum vegna heimildarmyndar Fjögurra tíma löng heimildarmynd um milljarðamæringinn Elon Musk var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í vikunni. Musk er síður en svo sáttur við myndina. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar gerðu árás á verslanamiðstöð Brynja Dögg Friðriksdóttir Slökkviliðsmaður við störf á vettvangi í Pavlohrad. AP/Ukrainian Emergency Service / Uncredited Fimm voru drepnir og minnst 67 særðust í árás Rússa á verslanamiðstöð í Pavlohrad í Dnipropetrovsk-héraði í Úkraínu í gær. Þrír unglingsdrengir eru meðal þeirra sem særðust. Kyiv Independent greinir frá. Árásin var framin um miðjan dag þegar margt fólk var á ferli. Ekki liggur fyrir hvernig sprengju var beitt en að minnsta kosti einn dróni lenti á verslanamiðstöðinni eftir fyrstu sprenginguna. Pavlohrad er um 75 kílómetra frá víglínunni og var lengi vel talin nokkuð örugg borg en ástandið hefur versnað þar á undanförnum mánuðum. 11. september 2026 kl. 0:18ERLENDAR FRÉTTIR Rússland Rússar gripnir með leynilegar sæstrengjaklippur Rússar voru í vor gripnir glóðvolgir við æfingar á leynivopni sem hannað er til að klippa á sæstrengi. Æfingarnar voru í grennd við Svalbarða. 10. september 2026 kl. 22:43INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Þúsundir prjóna til að rjúfa mynstrið Prjónað til styrktar Kvennaathvarfinu. 10. september 2026 kl. 21:52INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Sleggjunni slengt á Kristrúnu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kallar hallalaus fjárlög ríkisins sleggju. Stjórn landsins sé í öruggum höndum þrátt fyrir verðbólgu og vexti, ábyrg stjórnvöld taki erfiðar ákvarðanir. 10. september 2026 kl. 21:50ÍÞRÓTTIR Handbolti ÍBV og Þór með sína fyrstu sigra á leiktíðinni Þrír leikir voru spilaðir í Olísdeild karla í handbolta í kvöld. FH og Afturelding gerðu jafntefli. ÍBV vann Selfoss og Þór lagði HK að velli. 10. september 2026 kl. 21:03ÍÞRÓTTIR Fótbolti Öruggt hjá Bayern og United í Meistaradeildinni Bayern München byrjar deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu vel þessa leiktíðina og vann Bodø/Glimt frá Noregi 4-0. Endurkoma Manchester United í keppnina var líka glæsileg. 10. september 2026 kl. 20:41INNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Skora á ríkisstjórnina að hverfa frá skattahækkunum Skilaboð sem ríkisstjórnin sendi með hækkunum í fjárlagafrumvarpinu voru ekki til að vekja vonir um að kjarasamningar haldi, segir formaður Starfsgreinasambandsins. 10. september 2026 kl. 20:39ÍÞRÓTTIR Sund Sonja fimmta á EM Sonja Sigurðardóttir lauk keppni í 5. sæti í 50 metra baksundi á Evrópumóti fatlaðra í sundi í dag. Keppt var í Tyrklandi. 10. september 2026 kl. 20:34ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Árásir Ísraelshers mældust á jarðskjálftamælum í Líbanon Árásir Ísraelshers á neðanjarðarbyrgi Hezbollah-samtakanna í Líbanon mældust á jarðskjálftamælum í landinu. Ísraelska varnarmálaráðuneytið birti myndband af árásinni á samfélagsmiðlinum X. 10. september 2026 kl. 20:30ÍÞRÓTTIR Körfubolti Spánn náði síðasta lausa sætinu í undanúrslitum HM Spánn vann Ástralíu 89-66 í síðasta leik 8-liða úrslitanna á heimsmeistaramóti kvenna í körfubolta í Berlín í Þýskalandi í kvöld. Spánn varð þar með fjórða og síðasta liðið inn í undanúrslit á HM. 10. september 2026 kl. 20:24ERLENDAR FRÉTTIR Bretland B