Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Von um meiri tekjur á ferðamann

Read Full Article →

Viðskipti | Morgunblaðið | 11.9.2026 | 11:00 Von um meiri tekjur á ferðamann Vélmennið Valli ekur um verslunina og býður gestum og gangandi vörur á tilboði. Þóroddur Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Kristrún um gjaldtöku: „Við lifum í breyttum heimi“ „Gríðarleg vonbrigði“ fyrir ferðaþjónustuna Kláfur í Esjuhlíðum: Nýr kafli í ferðamennsku Hækkun bankaskatts og aukin gjöld af ferðamönnum Skora á stjórnvöld að vinna með ferðaþjónustu » Fleiri tengdar fréttir Nýjar og glæsilegar komu- og brottfararverslanir Ísland Duty Free á Keflavíkurflugveli voru vígðar með viðhöfn sl. miðvikudag. Verslanirnar eru reknar af þýska stórfyrirtækinu Gbr. Heinemann og lagði félagið milljarða íslenskra króna í endurbætur. Blaðamenn fengu leiðsögn um búðirnar þar sem íslenskum vörum er gert sérlega hátt undir höfði og stillt upp á mjög afgerandi hátt á bláu svæði í miðjunni. Engin verslun Heinemann í heiminum hefur jafn hátt hlutfall innlendra vörumerkja eða 30%. Það sem kemst næst því er ítölsk verslun Heinemann með 24%. Ýmsar nýjungar er að finna í verslununum eins og Heiðar Róbert Birnuson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Ísland Duty Free nefndi á ferð um búðirnar. Til dæmis er nú boðið upp á skartgripi og minjagripi. Úrval af sterku áfengi eins og tequila og viskíi hefur verið aukið mikið sem og af rauðvíni. Tóbaksverslunin hefur verið færð í nýtt horn. Þar má nú finna stóraukið úrval af vindlum, eða 40 tegundir. Íslenskum vörum er gert hátt undir höfði á blámáluðu gólfi verslananna. mbl.is/Eggert Þegar komið er út úr brottfararversluninni geta ferðamenn fyllt á vatnsbrúsa í fjórum krönum á veggnum. Heiðar upplýsti að á fyrstu sex vikunum sem kranarnir voru í notkun hafi 22 þúsund lítrar af vatni streymt úr einum þeirra sem er meira en í nokkrum sambærilegum krönum í öðrum verslunum Heinemann í veröldinni en fyrirtækið rekur fríhafnarverslanir um allan heim. Gagnvirkni Einnig er hægt að kynna sér rauðvín á gagnvirkan hátt með því að lyfta upp flöskum á þar til gerðu stæði sem kallast „Lift and learn “. Enn fremur hefur verslunin tekið vélmennið Valla í sína þjónustu sem kynnir vörur fyrir ferðafólki. Af alþjóðlegum vörumerkjum í búðunum má nefna Tom Ford, Valentino, Creed og Diptique. Íslensk vörumerki eru til dæmis Sóley, Blue Lagoon Skin Science, Bioeffect og Flóki. Hreyknari en hann hélt Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia sem rekur flugvöllinn, sagði í opnunarræðu að þegar hann hefði litið yfir nýju verslanirnar hefði hann jafnvel orðið hreyknari en hann hélt að hann yrði. Max Heinemann og Sveinbjörn Indriðason kampakátir á opnuninni. Spurður um samstarfið við Heinemann segir Sveinbjörn í samtali við Morgunblaðið það hafa verið farsælt. „Max [Heinemann forstjóri Heinemann] sagði einmitt frá því áðan að Heinemann hefði selt Loftleiðum vörur árið 1953 til að selja um borð í flugvélum fyrirtækisins þannig að það er ákveðin söguleg tenging við Ísland fyrir hendi,“ segir Sveinbjörn en Heinemann er 147 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki. Sveinbjörn segir það verðmætt að fá jafn reynslumikið fyrirtæki til samstarfs. „Neysluhegðun hefur breyst. Unga fólkið kaupir minna af áfengi og tóbaki sem lengi hefur verið mikil sala í og ferðahegðun hefur líka breyst. Erlendir ferðamenn sem koma í gegnum flugvöllinn eru alltaf stærri og stærri hópur. Að fá aðgang að þekkingu Heinemann í því hvernig á að nálgast ferðamenn og fá þá til að versla er ómetanlegt.“ Sveinbjörn segir að verslanirnar hafi yfir sér alþjóðlegt yfirbragð. Þær séu mun opnari og bjartari en áður og taki vel á móti ferðafólki. Inken Callsen, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Gbr. Heinemann. Forstjórinn segir að markmiðið sé að auka sölu á hvern farþega á samningstímanum sem er átta ár með möguleika á framlengingu um tvisvar sinnum eitt ár. Samningurinn gengur út á að Isavia fær ákveðna hlutdeild í tekjum verslananna. „Þeir greiða smávægilega fasta greiðslu, fyrir rafmagn, hita og svoleiðis, en annars liggja tekjur okkar í þessari hlutdeild. Það er því beggja hagur að stuðla að meiri verslun á hven farþega og Heinemann eru sérfræðingar í því.“ Ofboðslega áhugavert Inken Callsen, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Gbr. Heinemann, ber ábyrgð á öllum innkaupum á heimsvísu og flutningsnetinu sömuleiðis. „Þetta getur verið flókið starf en ofboðslega áhugavert. Ég er með 120 manns í innkaupadeildinni með mér og svo vinnur mikill fjöldi í vöruhúsum okkar víða um heiminn. Til dæmis eru 500 í vöruhúsinu okkar í Hamborg í Þýskalandi,“ segir Callsen í samtali við Morgunblaðið. Nánar um vöruhúsin segir Callsen að ný miðstöð verði opnuð í Tyrklandi innan tíðar. „Svo erum við líka með stór vöruhús í Sydney í Ástralíu, Miami í Bandaríkjunum og í Singapúr sem dæmi. Við reynum að koma söluhæstu vörunum í vöruhúsin til að vera nær markaðnum og lágmarka kolefnissporið.“ Hún segir að það sé sífelld áskorun að ná að þekkja viðskiptavininn sem best. „Hér á Íslandi þurfum við að horfa til Íslendinga og hvað þeir vilja en líka til ferðamanna almennt á leið um völlinn. Svo verðum við að huga að smekk Bandaríkjamanna, Kínverja, og svo mætti lengi telja,“ segir Callsen og brosir. Heiðar Róbert Birnuson útskýrir Lyftu og lærðu (e. z ) Hún segir að Heinemann fylgist vel með verslunum. Ef eitthvað sé ekki að hreyfast sé hægt að breyta til tiltölulega hratt. „Það getur verið aðeins seinlegra að skipta út sumum vörumerkjum en við gerum líka mikið af því að kynna vörur á borðum við innganga til dæmis og getum þannig lært af því hvað fólk velur og hvernig það bregst við því sem við erum að prófa.“ Callsen segir að margt spili inn í þegar verið sé að „breyta ferðamanni í viðskiptavin“. „Hönnun verslunar skiptir þar máli, vöruúrvalið og verðið en svo má ekki gleyma starfsfólkinu og góðu viðmóti þess. Öll upplifunin skiptir máli.“ Komuverslun hefur alltaf verið vinsæl í Leifsstöð en stórar slíkar verslanir eru ekki algengar. „Við höfum þó góða reynslu af Osló þar sem við erum með verslun á flugvellinum. Þar er stór komuverslun en einnig í Tyrklandi til dæmis,“ segir Callsen og grípur um gyllt skæri til að klippa á borða með kollegum sínum. Fríhöfn Komuverslunin er 2.150 fernetrar og 126 metra löng. Inngangur í brottfararverslun var 8 m breiður en er nú 28 m. Brottfararverslunin er 1.750 fm og 82 m löng. Meðal vörumerkja eru Tom Ford, Diptique, Circolo, Sóley, Bioeffect, Blue Lagoon Skin Science, Fishersund og Flóki. Kassasvæði í brottfararverslun annar 800 manns á klst. Kassasvæði í komuverslun annar 1.000 manns á klst. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Kristrún um gjaldtöku: „Við lifum í breyttum heimi“ „Gríðarleg vonbrigði“ fyrir ferðaþjónustuna Kláfur í Esjuhlíðum: Nýr kafli í ferðamennsku Hækkun bankaskatts og aukin gjöld af ferðamönnum Skora á stjórnvöld að vinna með ferðaþjónustu » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Valkostur við hvað í Þýskalandi? Sigurður Már Jónsson Glæpir og tölfræði Fleira áhugavert Segir lögreglu „einfaldlega giska“ Fer fram á fimm ára dóm í Höfðatorgsmáli Deilt um afdrif ESB-umsóknar Lýsir alvarlegri stöðu borgarinnar Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni SPAR opnar fimmtu verslunina Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Hermann tekur við sameinuðu félagi Hildur nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Anna Björk ráðin framkvæmdastjóri Expectus ráðgjafar Saka Símann um skaðlega undirverðlagningu Gæti hrundið af stað kreppu Birta Ósk nýr markaðsstjóri Prís Krónan styrkist þrátt fyrir 150 milljarða halla Gervigreindarrisi kaupir íslenskt félag Hermann tekur við sameinuðu félagi Saka Símann um skaðlega undirverðlagningu Birta Ósk nýr markaðsstjóri Prís Anna Björk ráðin framkvæmdastjóri Expectus ráðgjafar Hildur nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Gæti hrundið af stað kreppu Krónan styrkist þrátt fyrir 150 milljarða halla Gervigreindarrisi kaupir íslenskt félag Er gervigreindin að verða óþekkjanleg? Tekjuskattur einstaklinga eykst um 3,1 milljarð Gervigreindarrisi kaupir íslenskt félag Neikvætt eigið fé Heimildarinnar Hækkun bankaskatts og aukin gjöld af ferðamönnum Kampakátir gestir fylltu Hádegismóa Hermann tekur við sameinuðu félagi Fyrsta lausn sinnar tegundar í Evrópu Segir ríkisstjórnina ekki sýna gott fordæmi Áformin valda sárum vonbrigðum Tekjuskattur einstaklinga eykst um 3,1 milljarð Krónan styrkist þrátt fyrir 150 milljarða halla Pistlar » Sigurður Már Jónsson Valkostur við hvað í Þýskalandi? Sigurður Már Jónsson Glæpir og tölfræði Fleira áhugavert Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Von um meiri tekjur á ferðamann Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Þiggja fé án þess að vinna handtak Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni SPAR opnar fimmtu verslunina Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Hermann tekur við sameinuðu félagi Hildur nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Anna Björk ráðin framkvæmdastjóri Expectus ráðgjafar Saka Símann um skaðlega undirverðlagningu Gæti hrundið af stað kreppu Birta Ósk nýr markaðsstjóri Prís Krónan styrkist þrátt fyrir 150 milljarða halla Gervigreindarrisi kaupir íslenskt félag Hermann tekur við sameinuðu félagi Saka Símann um skaðlega undirverðlagningu Birta Ósk nýr markaðs

Share this article