Icelandair harmar það að Flugvirkjafélag Íslands hafi sett af stað atkvæðagreiðslu um ótímabundið allsherjarverkfall. Flugfélagið segir í yfirlýsingu að verkfall af þessari stærðargráðu hefði miklar afleiðingar og áhrifin myndu ná langt út fyrir starfsmi þess. „Icelandair hefur þegar lagt fram samningstilboð og getur ekki gengið lengra í þeim efnum, en kröfur Flugvirkjafélagsins eru langt umfram það sem gengur og gerist í samfélaginu.“ Hóti verkfalli á háannatíma Icelandair segir að verði ótímabundin allsherjarverkfall samþykkt muni það leiða til mikilla raskana og fljótlega stöðvunar á flugáætlun Icelandair. Flugfélagið bendir á að septembermánuður sé háannatími. Á þessum tíma séu flug í áætlunarflugi um 110 að meðaltali á degi hverjum og fjöldi farþega um 15 þúsund á dag. „Slíkar aðgerðir á háannatíma myndu því ekki aðeins valda farþegum óþægindum og Icelandair tjóni, heldur einnig hafa víðtæk áhrif á íslenskt atvinnulíf, hagkerfið og samfélagið í heild.“ Icelandair segir að slíkar aðgerðir leggjast ofan á þær áskoranir sem Icelandair stendur frammi fyrir. Aðstæður hafi verið krefjandi í rekstrarumhverfinu um langa hríð, meðal annars vegna mjög hás eldsneytisverðs. „Icelandair gegnir mikilvægu hlutverki í innviðum landsins og tengingum Íslands við umheiminn. Verði verkfall að veruleika munu áhrifin ná langt út fyrir starfsemi félagsins. Þúsundir farþega yrðu fyrir röskun og áhrifin yrðu veruleg á íslenska ferðaþjónustu, útflutningsgreinar og fjölmörg fyrirtæki sem reiða sig á öflugar flugsamgöngur.“