Flugvirkjafélag Íslands boðar ótímabundið verkfall frá aðfaranótt 23. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Búast má við miklum truflunum á flugáætlun flugfélagsins verði af verkfallinu. Á vefsíðu Flugvirkjafélags Íslands kemur fram að verkfallið hafi verið samþykkt með 88,3% greiddra atkvæða. Kjörsókn var 92%. „Vilji félagsmanna er því skýr og hefst vinnustöðvunin að öllu óbreyttu kl. 00:01 miðvikudaginn 23. september næstkomandi.“ Þá segir að Icelandair, Samtökum atvinnulífsins og ríkissáttasemjara hafi verið tilkynnt um niðurstöður atkvæðagreiðslunnar. Fréttin hefur verið uppfærð.