Flugvirkjar Icelandair hafa boðað ótímabundið verkfall 23. september. Icelandair telur kröfur flugvirkja langt umfram svigrúm félagsins og flugvirkjar hafna bindandi gerðardómi. Flugvirkjar hjá Icelandair samþykktu á mánudaginn að fara í verkfall frá og með miðvikudeginum 23. september, náist ekki samningar. Var þetta samþykkt með 88,3% greiddra atkvæða. Flugvirkjar hafa verið með lausa samninga síðan um áramótin síðustu. Vinnustöðvunin er ótímabundin og nær til allra flugvirkja bæði í farþega- og fraktflugi. Forsvarsmenn Icelandair meta kröfur flugvirkja langt umfram það svigrúm sem félagið hefur. Kröfurnar séu einnig langt umfram það sem samið hafi verið um á almennum vinnumarkaði, sem er 3,5%. Einungis til hagsbóta fyrir Icelandair Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segir að flugvirkjum hafi verið boðin 3,5% launahækkun og því hafi verið hafnað. Hann bendir á að flugvirkjar hafi verið með fastan kjarasamning síðan 2020 og þannig komið til móts við Icelandair í gegnum heimsfaraldurinn. Laun þeirra stétta sem flugvirkjar beri sig saman við hafi hækkað um 50% frá árinu 2019 á meðan laun flugvirkja hafi hækkað um 27%. Munurinn er 23 prósentstig. Óskar vill ekki nefna um hvaða stéttir ræðir en tekur fram að talan sé ekki úr lausu lofti gripin. Grunnlaun umræddra hópa hafi hækkað langt umfram grunnlaun flugvirkja á tímabilinu. Spurður hvort flugvirkjar horfi því til þess að vinna upp þann mun sem myndast hefur segir hann að engin prósentutala sé ákveðin en að þeir muni reyna eftir fremsta megni að bæta upp muninn. Varðandi hugmyndir um að leggja ágreininginn um laun fyrir gerðardóm segir Óskar að sú leið hugnist þeim ekki, þar sem slíkt væri einungis til hagsbóta fyrir Icelandair. Vinnustöðvunin sem nú hefur verið boðuð sé neyðarúrræði og það sé á ábyrgð beggja aðila að afstýra henni með því að boða til fundar og reyna að ná sátt. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA. © Eggert Jóhannesson (Eggert Jóhannesson) „Í mjög kröppum dansi“ Samtök atvinnulífsins semja við Flugvirkjafélag Íslands, fyrir hönd Icelandair. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir Icelandair hafa metið kostnaðarhækkun vegna kröfu flugvirkja, eins og hún sé sett fram, á 25 til 30% á tveimur árum. „Þetta er hjá stétt sem er með meðalheildarlaun upp á 1,4 milljónir,“ segir Bjarni og bætir við að krafa flugvirkja sé óaðgengileg fyrir Icelandair og úr öllum takti við það sem vinnumarkaðurinn þurfi á að halda um þessar mundir. Vísar hann til forsendubrests í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, sem sé tilkominn vegna þrálátrar verðbólgu. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttaskýringuna í heild hér .