Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nýyrðum yfir skattahækkanir fjölgar enn

Read Full Article →

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er hægt og rólega að verða uppáhalds samfélagsmiðlaáhrifavaldur hrafnanna. Á Instagram-reikningi fjármálaráðuneytisins bregður hann reglulega á leik og gefur áhorfendum innsýn inn í eigin störf. Í nýjasta myndbandinu, undir yfirskriftinni: Á rúntinum með ráðherra , segir Daði frá því að hann hafi verið að ganga frá fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 en frumvarpið var kynnt í byrjun vikunnar. Daði stærir sig meðal annars enn og aftur af hallalausum fjárlögum. Það sem vakti aftur á móti athygli hrafnanna var að fjármálaráðherra fann enn eitt nýyrðið yfir skattahækkanir: „skynsemi í tekjuöflun“. Bætist það þar með í flokk með fyrri nýyrðum ríkisstjórnarinnar á borð við „aðhald á tekjuhliðinni“, „leiðrétting“, „að breyta gömlum kerfum“ og „réttlæti“. Fróðlegt verður að sjá hvað nýyrðasmiði ríkisstjórnarinnar dettur næst í hug. Huginn og Muninn er einn af föstum skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article