Hópurinn kemur saman til æfinga á fimmtudag og æfir í þrjá daga undir stjórn þjálfarateymis A-landsliðs karla, að Arnóri Atlasyni frátöldum. Tilgangurinn er að stytta bilið frá þeim efnilegustu til þeirra bestu og auðvelda leikmönnum að taka skrefið inn í A-landsliðið þegar þar að kemur. Hópurinn er svona: Markverðir: Ágúst Elí Björgvinsson, KA Einar Baldvin Baldvinsson, Afturelding Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH Aðrir leikmenn: Arnór Snær Óskarsson, Valur Ágúst Guðmundsson, FH Brynjar Narfi Arndal, FH Dagur Gautason, KA Dagur Árni Heimisson, KA Daníel Montoro, Valur Freyr Aronsson, Haukar Gunnar Róbertsson, Valur Harri Halldórsson, Afturelding Ingvar Dagur Gunnarsson, FH Jens Bragi Bergþórsson, KA Jón Bjarni Ólafsson, FH Ómar Darri Sigurgeirsson, FH Sigurður Páll Matthíasson, Víkingur Skarphéðinn Ívar Einarsson, Haukar Stefán Magni Hjartarson, Afturelding Ævar Smári Gunnarsson, Afturelding Össur Haraldsson, Haukar