Snorri Steinn Guðjónsson valdi 21 leikmann úr í elítuhópinn. Hann segist hafa gengið með þessa hugmynd lengi. Það sé þörf fyrir verkefni fyrir efnilegustu leikmenn landsins að brúa bilið upp í A-landsliðið. „Ég met það þannig að hér er eitthvað af framtíðarmönnum landsliðsins og því meira sem þeir eru inni í því sem við erum að gera, því auðveldara eru hlutirnir að ganga upp þegar þar að kemur,“ segir Snorri Steinn. Jón Bjarni Ólafsson úr FH og Gunnar Róbertsson úr Val eru tveir þeirra sem skipa hópinn nú. Jón Bjarni spilaði fyrstu landsleiki sína í vor og fann muninn. „Ég fann muninn á levelinu sem menn eru komnir á,“ segir hann. Gunnar er bara 18 og okkar efnilegasti leikmaður og telur svona verkefni hjálpa. „Gott að fá að komast í kúlturinn hérna og sjá hvernig þetta er,“ segir hann.