Breski gervihnattaframleiðandinn Open Cosmos tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði lokið 300 milljóna evra fjármögnun hjá evrópskum fjárfestum. Fjármögnunin kemur skömmu eftir að The Exploration Company lauk stærstu fjármögnun í sögu evrópsks geimiðnaðar. Á vef New York Times segir að evrópskir leiðtogar hafi lengi haft áhyggjur af því að álfan sé að dragast aftur úr Bandaríkjunum í geimvísindum. Fjárfestar hafa sett meira en 14,2 milljarða evra í geimtæknisprota á heimsvísu það sem af er ári samkvæmt gagnaveitunni PitchBook og stefnir fjárfestingin í að verða nær tvöfalt meiri en á síðasta ári. Sjá einnig Enn eitt félag Musks metið á tugmilljarða dala Fjármögnun Open Cosmos var leidd af breska framtakssjóðnum Lightrock og ETF Partners, en meðal annarra þátttakenda voru katalónski þróunarbankinn Institut Català de Finances, frumkvöðlasetrið Entrepreneurs First og tveir alþjóðlegir lífeyrissjóðir. Open Cosmos, sem var stofnað fyrir 11 árum, hefur þar með safnað yfir 337 milljónum evra frá stofnun og er metið á um 1,7 milljarða evra samkvæmt tveimur heimildarmönnum sem vildu ekki koma fram undir nafni. Fyrirtækið hyggst nota fjármagnið til að auka framleiðslugetu sína á gervihnöttum og auka sölu á gervihnattagögnum. Í mars tilkynnti félagið að það hygðist einnig bjóða upp á háhraðanettengingar um gervihnetti í beinni samkeppni við SpaceX.