Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tryggir 3,4 milljóna evra fjármögnun

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 19.8.2026 | 8:00 Tryggir 3,4 milljóna evra fjármögnun Íris Baldursdóttir, framkvæmdastjóri og meðstofnandi SnerpaPower og Auður Vésteinsdóttir, tæknistjóri og meðstofnandi. Ljósmynd/Silla Páls Setja bókamerki Tengdar fréttir Orkuskipti Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Sólrún endurkjörin stjórnarformaður Ætluðu ekki að banna bensín- og dísilbíla 13 rafknúnir strætisvagnar á götuna Engin upplýsingaóreiða í þetta sinn » Fleiri tengdar fréttir SnerpaPower, íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem gerir stærstu raforkunotendunum kleift að besta og sjálfvirknivæða raforkuáætlanir og -pantanir, hefur tryggt sér 3,4 milljónir evra í nýrri fjármögnun til að hraða sókn félagsins á Evrópumarkað. Fjármögnunin samanstendur af 3 milljóna evra fjármögnun leiddri af Encevo, sem er leiðandi orkufyrirtæki í Lúxemborg með yfir 3 milljarða evra í ársveltu en núverandi fjárfestar, Crowberry Capital og BackingMinds, taka einnig þátt í fjárfestingunni. Að auki hefur SnerpaPower hlotið 0,4 milljóna evra vaxtarstyrk úr Tækniþróunarsjóði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Frétt af mbl.is Gagnadrifin raforkuviðskipti lykill að samkeppnishæfni Meira en 1% af allri raforkunotkun iðnaðar í Evrópu Hugbúnaður SnerpaPower er þegar í notkun hjá um 15 iðnverum á Norðurlöndunum sem samanlagt nota yfir 10 TWst af raforku á ári. Það samsvarar meira en 1% af allri raforkunotkun iðnaðar í Evrópu eða raforkunotkun um þriggja milljóna evrópskra heimila. SnerpaPower mun nýta fjármagnið til frekari sóknar á Evrópumarkaði og áframhaldandi tækniþróunar, sem segir í tilkynningunni. Stuðla að samkeppnisforskoti „Orkusækin starfsemi getur ekki lengur litið á raforkukostnað sem fastan rekstrarkostnað. Fyrirtæki sem geta aðlagað sig að breyttum markaðs- og kerfisaðstæðum öðlast mikilvægt samkeppnisforskot,“ er haft eftir Írisi Baldursdóttur, framkvæmdastjóra og meðstofnanda SnerpaPower, í tilkynningunni. „Við erum stolt af því trausti sem viðskiptavinir okkar sýna okkur með því að velja hugbúnað SnerpaPower til að stýra yfir 10 TWst af raforku á ári. Þessi fjárfesting gerir okkur kleift að skala tæknina og innleiða fyrir enn fleiri iðnfyrirtæki um alla Evrópu.“ „Tækifærin til að besta raforkunotkun iðnaðar eru mikil, en um leið þarf að virða allar rekstrarlegar og samningsbundnar skorður þegar brugðist er við breytingum á raforkumörkuðum í rauntíma,“ er haft eftir Auði Vésteinsdóttir, tæknistjóra og meðstofnanda SnerpaPower, í tilkynningunni. „Þetta er tæknilega áskorunin sem við höfum unnið að því að leysa undanfarin ár. Markmið okkar er að gera háþróuð bestunaralgrím einföld í notkun fyrir allan iðnað, óháð því hversu flókinn rekstur þeirra eða raforkuinnkaup eru.“ Orkuskiptin kalla á fjárfestingar í stafrænni nýsköpun „Orkuskiptin kalla ekki aðeins á fjárfestingar í endurnýjanlegri orku og orkuinnviðum heldur einnig í stafrænni nýsköpun,“ er haft eftir Martin Wienands, Venture Partner hjá Encevo, í tilkynningunni. „SnerpaPower sameinar djúpa þekkingu á iðnaði og tækni sem hjálpar stórum raforkunotendum að lækka kostnað um leið og stuðlað er að sveigjanlegra raforkukerfi. Við teljum teymið einstaklega vel í stakk búið til að skala þessa lausn um alla Evrópu.“ Hraða orkuskiptum „Teymið hjá SnerpaPower hefur nýtt djúpa þekkingu sína á raforkumörkuðum til að hraða orkuskiptum á heimsvísu. Tæknileg þekking þeirra og framtíðarsýn um sjálfbærari framtíð gerir SnerpaPower að lykilfyrirtæki í eignasafni okkar,“ er haft eftir Jenny Ruth Hrafnsdóttur, meðeiganda hjá Crowberry Capital, í tilkynningunni. „Raforka er að verða ein mikilvægasta stefnumótandi auðlind fyrirtækja og eftir því sem raforkumarkaðir verða flóknari mun samkeppnishæfni iðnfyrirtækja í auknum mæli ráðast af því hversu vel þau stýra raforkunni. Frá því við fjárfestum fyrst hefur SnerpaPower sýnt að félagið er í fararbroddi á þessum nýja markaði og því erum við afar ánægð að halda áfram að styðja við Írisi, Auði og teymið þeirra,“ er haft eftir Söru Wimmerkranz, meðeiganda hjá BackingMinds, í tilkynningunni. Tengdar fréttir Orkuskipti Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Sólrún endurkjörin stjórnarformaður Ætluðu ekki að banna bensín- og dísilbíla 13 rafknúnir strætisvagnar á götuna Engin upplýsingaóreiða í þetta sinn » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Kemur hatrið frá vinstri? Sigurður Már Jónsson Jón Baldvin og ólígarkarnir Fleira áhugavert „Einhverjar athugasemdir á pólitíska sviðinu“ ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári Stærðarinnar ísjaki á Ísafjarðardjúpi „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ Tæplega 9 milljarða hagnaður Telur áhrifin tímabundin Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Bókfært virði Kerecis lækkað um 57 milljarða króna Sigurður Arnar ráðinn framkvæmdastjóri Guðmundur Fertram fær nýtt hlutverk hjá Coloplast Vanskilahlutföll hafa þrefaldast á hálfu ári Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði Bókfært virði Kerecis lækkað um 57 milljarða króna „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Sigurður Arnar ráðinn framkvæmdastjóri María Klara gengur til liðs við Athygli Tæplega 9 milljarða hagnaður Telur áhrifin tímabundin Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna Guðmundur Fertram fær nýtt hlutverk hjá Coloplast Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Breytingar hjá Bláa lóninu Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Brugðust þegar mest á reyndi Bankinn finnur fyrir samkeppni Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Ofar Getur farið á hvorn veginn sem er Vanskil og hagkerfið kólnar hratt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Kemur hatrið frá vinstri? Sigurður Már Jónsson Jón Baldvin og ólígarkarnir Fleira áhugavert „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Stærsta Menningarnótt til þessa Viðræður við ESB fela í sér aðlögun „Við ætlum að gera meira hér í Keflavík“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ Tæplega 9 milljarða hagnaður Telur áhrifin tímabundin Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Bókfært virði Kerecis lækkað um 57 milljarða króna Sigurður Arnar ráðinn framkvæmdastjóri Guðmundur Fertram fær nýtt hlutverk hjá Coloplast Vanskilahlutföll hafa þrefaldast á hálfu ári Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði Bókfært virði Kerecis lækkað um 57 milljarða króna „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Sigurður Arnar ráðinn framkvæmdastjóri María Klara gengur til liðs við Athygli Tæplega 9 milljarða hagnaður Telur áhrifin tímabundin Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna Guðmundur Fertram fær nýtt hlutverk hjá Coloplast Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Breytingar hjá Bláa lóninu Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Brugðust þegar mest á reyndi Bankinn finnur fyrir samkeppni Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Ofar Getur farið á hvorn veginn sem er Vanskil og hagkerfið kólnar hratt

Share this article