Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Flugvirkjar boða verkfall í næstu viku

Read Full Article →

Flugvirkjar hjá Icelandair hafa samþykkt boðun ótímabundinnar vinnustöðvunar með 88,3% greiddra atkvæða. Vinnustöðvunin hefst að öllu óbreyttu kl. 00:01 miðvikudaginn 23. september næstkomandi, að því er segir í tilkynningu á vef Flugvirkjafélags Íslands. Icelandair, Samtökum atvinnulífsins og ríkissáttasemjara hefur verið tilkynnt um niðurstöður kosningarinnar. Icelandair segir í tilkynningu að náist ekki samkomulag í millitíðinni megi gera ráð fyrir að verkfallið raski flugrekstri félagsins og geti haft áhrif á flugáætlun þess. „Á þessu stigi er ekki unnt að meta hugsanleg fjárhagsleg áhrif verkfallsins á Icelandair Group.“ Icelandair sagði í yfirlýsingu fyrir helgi að flugfélagið hefði þegar lagt fram samningstilboð og gæti ekki gengið lengra í þeim efnum. Félagið sagði kröfur Flugvirkjafélagsins langt umfram það sem gengur og gerist í samfélaginu. Sjá einnig Icelandair segir kröfur flugvirkja óraunhæfar Föstudaginn 11. september sl. var efnt til rafrænnar kosningar meðal félagsmanna Flugvirkjafélags Íslands sem starfa hjá Icelandair. Í kosningunni var borið undir félagsmenn hvort þeir styddu boðun ótímabundinnar vinnustöðvunar. Sem fyrr segir var vinnustöðvunin samþykkt með 88,3% greiddra atkvæða. Kjörsókn var 92%. Flugvirkjar starfandi hjá Icelandair hafa staðið í kjaradeilu við fyrirtækið undanfarna mánuði. Kjarasamningar urðu lausir um síðustu áramót en viðræður aðila hófust í nóvember 2025. Þann 13. febrúar vísaðu Samtök atvinnulífsins, sem fara með samningsumboð fyrir hönd Icelandair, deilunni til ríkissáttasemjara. Þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara hefur lítið miðað í deilunni. Eftir fund hjá ríkissáttasemjara þann 22. júní slitnaði upp úr viðræðum milli aðila.

Share this article