Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ávöxtunar­krafan yfir 5% í fyrsta sinn síðan 2023

Read Full Article →

Ávöxtunarkrafa 10 ára bandarískra ríkisskuldabréfa fór í dag yfir 5% í fyrsta sinn frá árinu 2023. Þetta er í aðeins annað skiptið sem ávöxtunarkrafan fer yfir 5% frá árinu 2007. Ávöxtunarkrafan fór yfir 5% múrinn um tvöleytið í dag en lækkaði í kjölfarið og stendur í 4,951% þegar fréttin er skrifuð. Ávöxtunarkrafa skuldabréfa hefur farið hækkandi frá því í lok júní og náð nýjum hæðum undanfarna daga. Þróunin er meðal annars rakin til vaxandi spennu í Mið-Austurlöndum sem hefur ýtt olíuverði upp. Jafnframt hafa væntingar markaðsaðilar um að Seðlabanki Bandaríkjanna hækka hækki stýrivexti á næsta vaxtaákvörðunarfundi aukist. Í umfjöllun WSJ er bent á að ávöxtunarkrafa 10 ára ríkisskuldabréfa, sem hækkar þegar verð skuldabréfa lækkar, sé mikilvægur áhrifaþáttur vaxtastigs í hagkerfinu. Hækkun ávöxtunarkröfunnar hefur áhrif leitt til lakari kjara á húsnæðislánum og vaxtagreiðslur af nýjum fyrirtækjaskuldabréfum hafa hækkað verulega undanfarnar vikur. Mikil hækkun á ávöxtunarkröfu hefur einnig orðið sífellt meira áhyggjuefni fyrir ríkisstjórn Trumps í aðdraganda þingkosninganna síðar á þessu ári. Trump forseti hefur ítrekað hvatt seðlabankann til að lækka vexti. Aftur á móti hafa tilraunir Scotts Bessent fjármálaráðherra til að stemma stigu við hækkun ávöxtunarkröfu skuldabréfa með auknum endurkaupum ríkisins á langtíma skuldabréfum enn sem komið er ekki borið árangur.

Share this article