- What: Potential financial impact of a pilot strike on Icelandair
- Impact: Could significantly reduce company profits
Yfirvofandi verkfall flugvirkja Icelandair gæti haft veruleg áhrif á afkomu félagsins verði ekki samið áður en vinnustöðvun hefst 23. september. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Akkurs, þar sem Alexander Jensen Hjálmarsson greiningaraðili metur áhrif mögulegs verkfalls og hækkandi eldsneytisverðs á rekstur og virði Icelandair. Félag íslenskra flugvirkja hefur boðað ótímabundið verkfall flugvirkja Icelandair frá klukkan 00:01 þann 23. september. Akkur áætlar að algjör kyrrsetning flugflotans kosti félagið um 6,2 milljónir dala á dag í EBITDA, þegar meðal annars er tekið tillit til tapaðra tekna og bótaskyldu samkvæmt reglum ESB um réttindi flugfarþega. Á einni viku myndi slíkt verkfall kosta um 44 milljónir dala, jafnvirði um 22% af áætlaðri EBITDA Icelandair fyrir árið í heild. Akkur telur jafnframt að slík niðurstaða myndi gera EBIT, rekstrarhagnað félagsins fyrir fjármagnsliði og skatta, neikvæðan á árinu. Áhættan eykst hratt eftir því sem vinnustöðvun dregst á langinn. Tvær vikur með öllum flugflotanum á jörðu niðri gætu kostað félagið um 87 milljónir dala í EBITDA, sem jafngildir um 43% af áætlaðri EBITDA ársins. Akkur metur áhrif slíkrar sviðsmyndar á virði félagsins á um 0,26 krónur á hlut, eða um 16% af 1,67 króna verðmati greiningarfyrirtækisins. Fordæmið frá 2017 mildara Akkur bendir þó á að algjör kyrrsetning flugflotans sé ekki eina mögulega niðurstaðan verði af verkfalli flugvirkja. Í verkfalli flugvirkja árið 2017 stóð vinnustöðvunin í þrjá daga og var um helmingi flugáætlunarinnar aflýst. Endurtaki sú sviðsmynd sig nú metur Akkur að áhrifin á EBITDA Icelandair yrðu um 9 milljónir dala, eða sem nemur 5% af áætlaðri EBITDA félagsins á árinu. Stæði hálf flugáætlunin niðri í sjö daga yrðu áhrifin hins vegar um 22 milljónir dala. Yrði allur flotinn kyrrsettur í viku gætu áhrifin numið um 44 milljónum dala, eða um 22% af áætlaðri EBITDA ársins. Akkur telur þó að sterkir fjárhagslegir hvatar séu fyrir báða aðila til að ná samkomulagi áður en til vinnustöðvunar kemur. Greiningarfyrirtækið áætlar árlegan launakostnað vegna flugvirkja hjá Icelandair á bilinu 30 til 45 milljónir dala. Tíu prósentustiga munur á afstöðu samningsaðila samsvari samkvæmt útreikningum Akkurs aðeins um hálfum degi af kostnaði við algjöra kyrrsetningu flotans. „Fjárhagsleg rök hníga að því að samið verði snemma,“ segir í greiningunni. Akkur vísar þar jafnframt til reynslunnar frá árinu 2017, þegar verkfallinu lauk eftir þrjá daga Bótaskylda hverfur ekki í verkfalli eigin starfsmanna Verkfallið hefur jafnframt þá sérstöðu að Icelandair getur ekki sjálfkrafa komist hjá bótaskyldu samkvæmt EU261-reglunum með vísan til þess að eigin starfsmenn séu í verkfalli. Akkur miðar við um 15 þúsund farþega á dag í september og um 330 dala meðaltekjur á hvern farþega. Í útreikningum fyrirtækisins er gert ráð fyrir að hluti kostnaðar sparist þegar flugi er aflýst, en á móti komi meðal annars bætur til farþega. Akkur bendir á að bætur upp á 400 til 600 evrur geti átt við vegna verkfalls eigin starfsmanna. Möguleikinn á að komast hjá bótaskyldu með 14 daga fyrirvara sé ekki fyrir hendi fyrr en 28. september, og þá aðeins vegna flugs sem aflýst væri með nægilegum fyrirvara. Því gæti Icelandair eftir þann tíma staðið frammi fyrir vali milli þess að halda flugi inni í áætlun og taka áhættuna á bótagreiðslum eða aflýsa fyrir fram og fórna tekjunum. Eldsneytið enn stærri áhætta Þótt verkfallshættan sé brýn telur Akkur hækkandi flugvélaeldsneytisverð vera stærri áhættuþátt fyrir verðmat Icelandair. Verð á flugvélaeldsneyti í Evrópu var komið í um 1.420 dali tonnið í byrjun september og Brent-olía hafði þá hækkað um 10% til viðbótar. Icelandair er að hluta varið fyrir hækkuninni til skamms tíma með eldsneytisvörnum. Samkvæmt útreikningum Akkurs er um 47% af eldsneytisnotkun síðari hluta ársins varið á um 684 dali tonnið. Varnirnar eru hins vegar mun minni fyrir árið 2027. Aðeins um 11% eldsneytisnotkunar næsta árs er tryggt með vörnum og því verður afkoman mun næmari fyrir verði á heimsmarkaði. Akkur áætlar að hver 100 dala hækkun á tonni umfram þá verðferla sem þegar liggja til grundvallar spám fyrirtækisins geti lækkað EBITDA Icelandair árið 2027 um tæplega 30 milljónir dala. Sé eldsneytisverðið til dæmis 1.350 dalir tonnið, í stað 1.200 dala, lækkar áætluð EBITDA ársins 2027 um 44 milljónir dala. Við 1.500 dali tonnið verður höggið 89 milljónir dala og við 1.650 dali 133 milljónir dala. Það er verulegt í samhengi við að nýjasta EBITDA-spá Akkurs fyrir Icelandair árið 2027 hljóðar upp á 234 milljónir dala. Fleiri kjaramál í uppsiglingu Flugvirkjadeilan er ekki eina vinnumarkaðsáhættan sem Akkur fylgist með. Í greiningunni er sérstaklega bent á 15. september sem næsta mikilvæga dag vegna samningaviðræðna við flugmenn. Samkvæmt vinnuáætlun átti að stefna að endurnýjuðum kjarasamningi við þá fyrir þann tíma. Næstu dagar geta því ráðið miklu um skammtímahorfur Icelandair. Akkur segist ætla að endurskoða afkomuspár sínar annaðhvort þegar samkomulag næst við flugvirkja eða þegar fyrsti verkfallsdagurinn rennur upp og ljóst verður hversu stór hluti flugáætlunarinnar raskast. Þá verður jafnframt fylgst með nýjum upplýsingum um eldsneytisvarnir þegar Icelandair birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 22. október. Hækkunin á eldsneytisverði í september mun að stórum hluta koma fram í kostnaði félagsins í október vegna þess hvernig eldsneytiskostnaður er færður. Þrátt fyrir þessa áhættu heldur Akkur enn óbreyttu 1,67 króna verðmati á hlut Icelandair og kaupráðleggingu með merkingunni „áhættusöm“. Greiningarfyrirtækið segir skammtímaáhrifin neikvæð en telur fjárfestingarrökin að svo stöddu óbreytt.