Innlent | mbl | 16.9.2026 | 16:38 Halla ánægð með Wolt-sendla Halla Gunnarsdóttir er formaður VR. Samett mynd/mbl.is/Eyþór/Aðasend Setja bókamerki × Hlustun á fréttir er aðeins í boði fyrir áskrifendur. Skoða áskriftarleiðir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, fagnar því að Wolt-sendar hér á landi hafi lagt niður störf og hvetur þá til að leita til verkalýðshreyfingarinnar vegna kjara sinna. „Mjög gott hjá Wolt-sendlum að rísa upp í sameiningu!“ skrifar Halla í færslu á Facebook. Um 60 sendlar Wolt lögðu niður störf í dag og mótmæltu kjörum sínum. Samkvæmt frétt RÚV segja sendlarnir fyrirtækið hafa lækkað greiðslur til þeirra og að í sumum tilfellum borgi þeir með því að taka að sér sendingar. Segir Wolt hafa verið til vandræða Halla segir deilurnar hér á landi ekki einskorðast við íslenska starfsemi fyrirtækisins. „Wolt hefur verið til vandræða á öllum Norðurlöndunum. Fyrirtækið neitar að virða kjarasamninga og lágmarksréttindi launafólks og nú síðast sigldu kjaraviðræður við Wolt í strand í Finnlandi,“ skrifar hún. VR og Landssamband íslenskra verzlunarmanna, LÍV, hafa tekið þátt í norrænu samstarfi verkalýðsfélaga um svokallaða vinnu á stafrænum verkvöngum, eða „platform work“. Norræn samtök launafólks sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í síðustu viku þar sem fyrirtæki sem reka slíka verkvanga voru hvött til að ganga til raunverulegra kjaraviðræðna. Þar kom fram að norræn verkalýðsfélög hefðu átt í viðræðum við Wolt árum saman en að viðræður hefðu strandað. VR og LÍV voru meðal þeirra samtaka sem stóðu að yfirlýsingunni. „Frekar en að fórna grundvallarréttindum“ Halla segir markmið samstarfsins vera að laga nýja tækni að norrænum vinnumarkaði, fremur en að réttindi launafólks víki fyrir tækninni. „Markmiðið er að laga nýja tækni að norrænum vinnumarkaði, frekar en að fórna grundvallarréttindum launafólks til að þjóna nýrri tækni, hversu þægileg sem hún kann að vera fyrir neytendur,“ skrifar hún. Að lokum hvetur Halla sendla Wolt til að hafa samband við verkalýðshreyfinguna. „Ég hvet Wolt sendla til að hafa samband við ASÍ, VR eða önnur stéttarfélög Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Andri Snær hlaut viðurkenningu Sigríðar í Brattholti Bjóða Tækniskólann velkominn til Reykjanesbæjar Halla ánægð með Wolt-sendla Frá Lundúnum til Amsterdam Bjóða farþegum að breyta flugi vegna verkfallsins Umræðan Æska mín í Sovétríkjunum Fjárhagsleg sjálfbærni velferðarkerfisins í hættu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brjóta land undir Keflavíkurborgir Misbauð málflutningur andstæðinga Ók of hratt þegar banaslys varð Hvorki bruni né asbest breyti áformunum Mest lesið Í gær Í vikunni Áhyggjur af eldri Úkraínumönnum í sveitarfélaginu Misbauð málflutningur andstæðinga Blikur á lofti í rekstri Sorpu Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Apple TV loksins komið til Íslands Hótelstjórinn Atlas er týndur og sárt saknað Ók of hratt þegar banaslys varð Vopnað rán í Breiðholti Sævar: „Ég árétta sakleysi mitt“ Borgarstjórinn kynnti ný skilti til leiks Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Vopnað rán í Breiðholti Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Frægasti skafl landsins horfinn Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Leggja til skerðingu húsnæðisbóta Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Þiggja fé án þess að vinna handtak Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Björgunarsveit komin upp við vegg Vopnað rán í Breiðholti Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Nýjast á mbl.is » Andri Snær hlaut viðurkenningu Sigríðar í Brattholti Bjóða Tækniskólann velkominn til Reykjanesbæjar Halla ánægð með Wolt-sendla Frá Lundúnum til Amsterdam Bjóða farþegum að breyta flugi vegna verkfallsins Umræðan Æska mín í Sovétríkjunum Fjárhagsleg sjálfbærni velferðarkerfisins í hættu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jóhann: „Nýr kafli í íslenskri orkusögu“ „Ég er bifvélavirki sem byrjaði með báðar hendur tómar“ Áhyggjur af eldri Úkraínumönnum í sveitarfélaginu „Hvað viljum við verja?“ Mest lesið Í gær Í vikunni Áhyggjur af eldri Úkraínumönnum í sveitarfélaginu Misbauð málflutningur andstæðinga Blikur á lofti í rekstri Sorpu Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Apple TV loksins komið til Íslands Hótelstjórinn Atlas er týndur og sárt saknað Ók of hratt þegar banaslys varð Vopnað rán í Breiðholti Sævar: „Ég árétta sakleysi mitt“ Borgarstjórinn kynnti ný skilti til leiks Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Vopnað rán í Breiðholti Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Níu þúsund króna súkkulaðistykki vakti athygli Frægasti skafl landsins horfinn Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Leggja til skerðingu húsnæðisbóta Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Þiggja fé án þess að vinna handtak Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Björgunarsveit komin upp við vegg Vopnað rán í Breiðholti Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn