Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Formaður VR hvetur Wolt-sendla til að hafa samband við stéttarfélög

Read Full Article →

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir heimsendingarfyrirtækið Wolt hafa verið til vandræða á öllum Norðurlöndunum. Hún fagnar því að sendlar hjá fyrirtækinu taki höndum saman og hvetur þá til að hafa samband við ASÍ, VR eða önnur stéttarfélög sendla. „Fyrirtækið neitar að virða kjarasamninga og lágmarksréttindi launafólks og nú síðast sigldu kjaraviðræður við Wolt í strand í Finnlandi,“ skrifar Halla í færslu á Facebook. Um 60 sendlar Wolt á Íslandi lögðu tímabundið niður störf í dag. Þeir segja að laun þeirra hafi lækkað umtalsvert að undanförnu. Sendlarnir eru í svokallaðri gerviverktöku. Þeir eru ekki starfsmenn Wolt og eru ekki í stéttarfélagi. Um 600 sendlar starfa hjá fyrirtækinu. Halla segir VR og LÍV hafa tekið þátt í norrænu samstarfi sem hefur það að markmiði að koma böndum á svokallaða vinnu á verkvöngum (platform work). „Markmiðið er að laga nýja tækni að norrænum vinnumarkaði, frekar en að fórna grundvallarréttindum launafólks til að þjóna nýrri tækni, hversu þægileg sem hún kann að vera fyrir neytendur,“ skrifar hún.

Share this article