Skautafélag Reykjavík er Íslandsmeistari karla í íshokkí eftir að sópað Skautafélagi Akureyrar í úrslitaeinvíginu. SR vann einvígið 3-0 og leik kvöldsins 3-2. SA sópaði SR í úrslitaeinvíginu fyrir ári síðan þannig að Reykvíkingar náðu í kvöld fram hefndum. Viðtöl og myndefni úr leiknum birtast í kvöldfréttum sunnudagskvöld. Mikil spenna var allan fjórða leikhlutann en SR komst í 3-0 eftir 27 mínútna leik. Alex Máni Sveinsson kom heimamönnum yfir í Skautahöllinni í Laugardal á 12. mínútu. Axel Orongan tvöfaldaði svo forskotið, en Axel var hetja SR-inga í ótrúlegum endurkomusigri í fyrsta leik einvígisins. Þorgils Eggertsson skoraði svo þriðja markið á 27. mínútu og ljóst að SR þyrfti að halda forskotinu í 33 mínútur. Mikil spenna undir lokin Jóhann Leifsson hleypti mikilli spennu í leikin með marki skömmu síðar, á 30. mínútu. Heiðar Gauti Jóhansson minnkaði svo muninn í 3-2 á 41. mínútu. Varnarmúr SR hélt hins vegar út í 19 mínútur. SA leituðu að glufum allan lokaleikhlutann en fundu engar. SR skaut eitt sinn í stöng. Lokamínúturnar voru æsispennandi en mikil fögnuður braust út í Skautahöllinni þegar lokaflautið gall. SR var 1-5 undir í fyrsta leiknum en vann hann 6-5. Þá vannst annars leikurinn fyrir norðan 1-5.