Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nýr Honda ZR-V frumsýndur

Read Full Article →

Honda ZR-V er nýjasti fjölskyldumeðlimur japanska bílaframleiðandans en bíllinn var frumsýndur hjá bílaumboðinu Öskju á dögunum. Bíllinn sameinar klassíska hönnun Honda við góða aksturseiginleika og nýstárlegt öryggi. Hann er með e:HEV-drifrás en notar blöndu af rafmótorum og tveggja lítra bensínvél og er búinn endurnýjandi hemlakerfi sem skilar afgangsorku sem fyllir á rafhlöðu bílsins. Drifrásin skilar bílnum 184 hestöflum og togið er 315 Nm. Hægt er að auka kraftinn með Sport-Akstursstillingunni en auk þess veitir snjóstilling bestu mögulegu akstursupplifun við vetraraðstæður. Honda ZR-V kemur í ADVANCE-útfærslu til Íslands og er því með ríkulegum staðalbúnaði. Sjá einnig Giacosa – einn fremsti bíla­hönnuður Ítala Fjölmörg hleðslutengi og geymslupláss í farþegarýminu gera ZR-V að þægilegum stað til að vera á. Hituð fram- og aftursæti með leðuráklæði, ásamt stemningslýsingu, tryggja hámarksþægindi. Nýr ZR-V er með stafrænum upplýsingaskjá fyrir enn betra öryggi. Advance-útfærslan er með framhliðarskjá sem miðlar mikilvægum upplýsingum. Nýjasta kynslóð Honda CONNECT upplýsinga- og afþreyingarkerfisins, með snjallsímatengingu í gegnum Apple CarPlay og Android Auto, gerir tengingu við bílinn snurðulausa.

Share this article