Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Veitir SKE 30 milljóna fram­lag vegna dag­vöru­markaðar

Read Full Article →

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur ákveðið að veita Samkeppniseftirlitinu 30 milljóna króna viðbótarframlag til að vinna að áherslum stjórnar um virka samkeppni á dagvörumörkuðum. Þessi ráðstöfun er sögð hluti af almennri viðleitni stjórnvalda til að ná niður verðbólgu. Jafnframt er hún sögð samræmast áherslum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um mikilvægi virkrar samkeppni og öfluga neytendavernd. „Dagvöruverð hér er með því hæsta sem þekkist í Evrópu“ Í tilkynningu atvinnuvegaráðuneytisins segir að ýmsar breytingar hafi orðið á dagvörumarkaði og þeim fyrirtækjum sem annast sölu, framleiðslu og innflutning á dagvöru á síðustu árum. „Dagvöruverð hér er með því hæsta sem þekkist í Evrópu og kaup á dagvöru eru einn af stærstu kostnaðarliðum heimila og þar af leiðandi stór þáttur í þróun verðbólgu. Af þessum sökum er mikilvægt að samkeppnisaðstæður á dagvörumörkuðum, og tengdum mörkuðum sem hafa áhrif á dagvöruverð, sæti skoðun.“ „ Það er mikilvægt að Samkeppniseftirlitið hafi bolmagn til að fylgja eftir áherslum stjórnar eftirlitsins. Í þeim áherslum er sérstaklega fjallað um mikilvægi samkeppni á dagvörumörkuðum, m.a. flutningamarkaði og eldsneytismarkaði. Er þetta mikilvægur liður í aðgerðum stjórnvalda til að ná niður verðbólgu og til að efla virka samkeppni og neytendavernd,“ segir Hanna Katrín Friðriksson , atvinnuvegaráðherra.

Share this article