Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

6% aukning á ráðlögðum grásleppuafla

Read Full Article →

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að veiðar á grásleppu fiskveiðiárið 2025/2026 verði ekki meiri en 2.932 tonn sem er um 6% hækkun frá síðasta fiskveiðiári. Ráðgjöfin byggir að mestu á stofnvísitölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2026 en einnig frá árinu á undan. Vísitala þessa árs var hærri en á síðasta ári en lág í sögulegu samhengi og vel undir langtíma meðaltali. Vísitala síðasta árs var sú næst lægsta síðan að mælingar hófust 1985. Í frétt frá Hafrannsóknastofnun segir að stofnvísitölur hrognkelsa sveiflist milli ára, sem endurspegli að hluta til óvissu í mælingunum. Vegna þessa vegi stofnvísitala sama árs 70% á móti 30% vægi vísitölu fyrra árs við útreikning ráðlagðs hámarksafla. Því leggur Hafrannsóknastofnun til að upphafsaflamark fiskveiðiárið 2026/2027 verði 973 tonn. Hér má sjá ráðgjafarskjal og tækniskýrslu vegna grásleppuafla (hrognkelsi).

Share this article