Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Breti með þýskri vél

Read Full Article →

Aston Martin er einn af goðsagnakenndari bílaframleiðendum. Framan af var það árangurinn á kappakstursbrautinni sem skóp ímyndina. Sigurinn í 24 tíma kappakstrinum í Le Mans árið 1959 með DBR1 festi nafn fyrirtækisins endanlega í sessi í mótorsportsögunni. En á síðari árum hafa kvikmyndir Broccolifjölskyldunnar, byggðar á bókum Ian Fleming, um James Bond haft án nokkurs vafa mikið að segja. Frá því að Sean Connery ók DB5 í Goldfinger árið 1964 hefur Aston Martin verið órjúfanlegur hluti af Bond-heiminum. DB 12 og forverarnir Við höfum fengið tækifæri til að prófa Aston Martin áður, bæði DB9 og DB11. Þann fyrrnefnda á kappakstursbraut og hinn í traffíkinni í Lundúnum. DB10 höfum við aðeins fengið að sjá á skjánum. DB10 var í raun þróaður sérstaklega fyrir Bond-myndina Spectre, en aldrei ætlaður til almennrar framleiðslu og aðeins 10 eintök smíðuð. DB12 kom á markað haustið 2023 og er fyrsti bíllinn í tíð kanadíska fjárfestisins Lawrence Stroll, sem varð stjórnarformaður í kjölfar kaupa hans í félaginu árið 2020. Stroll hafði áður byggt upp tískuvörumerkið Michael Kors og síðar keypt sig inn í Formúlu 1-lið Aston Martin. Með fjárfestingu sinni hóf hann umfangsmikla endurskipulagningu fyrirtækisins. Það var nokkur eftirvænting að sækja bílinn fyrir dagsferð út fyrir Berlín. Ég hafði úr ótal óskaplega skemmtilegum bílum að velja. Ég var hins vegar harðákveðinn í að taka DB12 þrátt fyrir miklar átölur, fortölur og úrtölur „sérfræðinganna“ sem töldu nær alla hina bílana betri. Aston Martin DB12 kom á markað árið 2023 og markar nýjan kafla hjá Aston Martin. Bæði góð og vond viðbrögð Það var viðeigandi að leiðin lá í gegnum austurhluta Berlínar, sjálft Pankow-hverfið þar sem kommarnir í Austur-Þýskalandi komu sér fyrir eftir stríðið. Á tímum kalda stríðsins og fram til 1960 var Pankow ein af valdamiðstöðvum austurþýska ríkisins og þar bjuggu háttsettustu embættismenn flokksins. Á leiðinni mátti merkja tvenns konar viðbrögð gangandi og akandi vegfarenda. Yngri piltar dáðust að bílnum og gáfu margir merki þess efnis, fyrir utan að stara á gripinn. Hinn hópurinn var minna sáttur. Eldri vinstrikonur sem fyrirlíta kapítalismann og sjá skortinn í hillingum – þennan sem Austur-Þjóðverjar kynntust svo vel, sérstaklega frá 1977, og þær hafa ekki hugmynd um hvernig er. Og ástæðan fyrir fyrirlitningu þeirra var án nokkurs vafa vélarhljóðið. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að Þýskaland hefur lengi verið eitt helsta heimili sportbíla í Evrópu. En á síðustu árum hafa umhverfissjónarmið og nýjar reglugerðir haft sífellt meiri áhrif á bílamenningu landsins. ESB hefur á síðustu árum innleitt strangari reglur um hljóðmengun nýrra bíla, sem hefur haft áhrif á hönnun útblásturskerfa í sportbílum. Hönnunin Bíllinn er augljós arftaki DB11 en grillið er stærra, sporvídd breiðari og línurnar skarpari. Bíllinn situr lægra og lítur út fyrir að vera stinnari í formi sínu. Þetta er ekki róttæk endur hönnun heldur markviss fínpússun. Hönnunarteymi Aston Martin undir stjórn Marek Reichman hefur síðustu ár lagt áherslu á að þróa útlitið frekar en að breyta því frá grunni. Þannig helst tengingin við klassíska DBbíla fortíðar skýr. Afturljósin eru grennri, loftinntök stærri og heildarsvipurinn sportlegri. Samt er enn þessi dæmigerða Aston Martin-hlutfallafræði: löng vélarhlíf, stuttur afturendi og lág þaklína. DB12 er alveg hreint ágætlega heppnaður en deila má um hvort hann stenst samanburð við samkeppnisaðilana í útliti. Ferrari Roma hefur til dæmis fengið mikið lof fyrir látlausa en dramatíska ítalska hönnun, á meðan Porsche 911 er eitt þekktasta bílaform í heimi. Frá því að Sean Connery ók DB5 í Goldfinger árið 1964 hefur Aston Martin verið órjúfanlegur hluti af Bond-heiminum. 680 hestöfl Undir vélarhlíf Aston Martin DB12 er handsmíðuð 4,0 lítra V8-vél með tveimur forþjöppum. Grunnurinn kemur frá samstarfi við Mercedes- AMG, en Aston Martin hefur endurforritað og fínstillt vélina í Gaydon þannig að karakterinn er annar. Útkoman er 680 hestöfl, 800 Nm tog og hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst á 3,6 sekúndum. Það er verulegt stökk frá V8-útgáfu DB11 og setur DB12 ofarlega í þessum flokki. Vélin er að grunni til sú sama og í Mercedes-AMG GT og fleiri AMG bílum. GT er hins vegar meiri sportbíll meðan DB12 leggur meira upp úr yfirvegaðri reisn, löngum hraðaköflum og látlausari krafti. AMG-vélin M177 hefur á síðasta áratug öðlast orðspor sem ein af bestu V8-vélum sem framleiddar hafa verið í heiminum. Undir húddinu á Aston Martin DB12 er 4,0 lítra V8-vél þróuð í samstarfi við Mercedes-AMG. Aksturseiginleikarnir Stærsta breyting frá DB11 er 80% stífari yfirbygging. Breiðari sporvídd og endurhannaður stýrisbúnaður og nýjar demparastillingar breyta aksturseiginleikum verulega. Á krókóttum vegum sýnir DB12 hve mikinn mun þessi stífni skapar. Bíllinn hallar sér minna, er rásfastur í beygjum og afturendinn fylgir betur eftir. Bíllinn er nokkuð þægilegur í GT-stillingu, dempar ójöfnur og heldur ró sinni á hraðbraut. Hann er þó stífari en maður hefði haldið. Þegar hraðinn eykst umbreytist hann. Þetta er ekki lengur mjúk, rómantísk sigling á hraðbrautinni rétt utan Berlínar. Það var þó þannig að stundum voru einhver aukahljóð sem erfitt var að festa hönd á. Slíkt er alveg óþolandi, hvort sem er í Fiat Panda eða DB12. Hins vegar gerir maður kröfu um í hinum síðarnefnda að allt sé tipp topp – og sjálfkrafa víkur huganum að því hvort enn vanti upp á fráganginn í breskri bílasmíði. Innrétting Aston Martin DB12 sameinar lúxus, leður og nútímalega tækni. Stórfín innrétting DB11 var gagnrýndur fyrir gamaldags margmiðlunarkerfi en í DB12 er tekið stórt skref fram á við. Í fyrsta sinn hefur Aston Martin þróað sitt eigið kerfi frá grunni. Tíu tommu snertiskjár er samþættur mælaborðinu og hugbúnaðurinn er hraður og skýr. Mikilvægast er þó að áþreifanlegir takkar eru enn til staðar. Stillingar á fjöðrun, útblæstri og akstursstillingum eru á raunverulegum rofum. Efnisval er í hæsta gæðaflokki. Leður, álsmíði og kolefni mynda heild sem er nútímalegri en áður en heldur samt þeirri handverkshefð sem Aston Martin byggir á. Upplifunin Eftir næstum heilan dag undir stýri vaknar spurningin óhjákvæmilega: er þetta bíllinn sem maður myndi sjálfur velja? Í upphafi ferðarinnar voru úrtöluraddirnar ofarlega í huga mér. En eftir því sem kílómetrarnir söfnuðust fór viðhorfið smám saman að breytast. Aston Martin DB12 vinnur á. Í rólegum akstri er hann fágaður en stundum full stífur innanbæjar. Bíllinn virkar á köflum stærri en hann er en tilfinningin er að maður sitji mjög neðarlega, rétt fyrir ofan malbikshæð. Þegar hraðinn eykst breytist karakterinn hins vegar. Vélin byggir afl sitt upp með þungum og öruggum krafti, og bíllinn leggst á veginn með þeirri ró sem einkennir góðan grand tourer. Yfirbygging Aston Martin DB12 er um 80% stífari en í forveranum Aston Martin DB11. Niðurstaða Aston Martin DB12 er skemmtilegur bíll. Persónulega er ég hrifnari af langferðasportbílum en sportbílum í ætt við til dæmis Porsche 911. DB12 er hins vegar ekki nógu skemmtilegur. En hann hefur aðra eiginleika sem skipta máli. Hann sameinar kraft, lúxus og reisn á þann hátt sem fáir bílar gera í dag. DB12 er ekki bíll sem reynir að vera hraðastur eða dramatískastur – heldur bíll sem leitast við að vera jafnvægið milli þeirra. Þegar ég skilaði bílnum spurði ég einn af spekingunum sem ég ræddi við í upphafi ferðar hvaða bíl hann hefði valið. Hann sagði frekar Porsche 911, enn frekar Mercedes- AMG GT en bíllinn sem hann hefði valið væri Mercedes S-Class. Ég var hissa. Bara standard S580, spurði ég? Já svaraði hann um hæl, því við eigum ekki AMG-útgáfuna af honum. Ferrari Roma er einn helsti hönnunarkeppinautur Aston Martin DB12. Samkeppnin Á markaði öflugra langferðasportbíla stendur Aston Martin DB12 frammi fyrir fjölbreyttri samkeppni þar sem hver framleiðandi leggur áherslu á ólíkan karakter. Ítalirnir með Ferrari Roma upp á 620 hestafla V8-vél og stíl sem byggir á klassískri ítalskri dramatík. Bíllinn er léttur á fæti og hannaður til að vera bæði fallegur og hraður, en hann leggur meiri áherslu á tilfinningu og stíl en hreinan langferðalúxus. Þjóðverjarnir hjá Porsche fara allt aðra leið með Porsche 911 Turbo S. Þar er áherslan á aflið, 650 hestöfl, fjórhjóladrif og ótrúleg afköst sem gera bílinn að einum hraðskreiðasta sportbíl í heimi í daglegri notkun en er um leið síðri valkostur á lengri leiðum. Í hinum enda langferðasportbíla-litrófsins er svo Bentley Continental GT Speed. Sá bíll leggur fyrst og fremst áherslu á lúxus, þyngd og yfirburða þægindi á löngum ferðalögum. Aflið er mikið, en upplifunin snýst fyrst og fremst um fágaðan kraft, handunnin efni og yfirvegaða reisn. Í sama flokki en með greinilega sportlegri áherslu er nýr Mercedes-AMG GT frá Mercedes-AMG. Aston Martin reynir að finna jafnvægi mitt á milli þessara ólíku áherslna með Aston Martin DB12. Hann er sportlegri og beittari í akstri en Bentley, minni sportbíll og meiri lúxusbíll en Porsche og yfirvegaðri í stíl en Ferrari. Nánar er fjallað um málið í sérblaðinu Bílar . Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article