Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bílar sem stálu senunni

Read Full Article →

Sumir bílar verða jafn eftirminnilegir og leikararnir sem sitja undir stýri. Þeir fá eigið útlit, persónuleika og jafnvel ofurkrafta. Hér eru sjö bílar sem hafa fest sig í sessi í kvikmyndasögunni og orðið að táknum langt út fyrir hvíta tjaldið. Volkswagen Bjalla – Herbie Hvít Volkswagen Bjalla með númerinu 53 varð heimsfræg í Disney-myndinni The Love Bug árið 1968. Herbie hafði eigin vilja, keppti í kappakstri og kom eigendum sínum reglulega á óvart. Rauðu, hvítu og bláu rendurnar gerðu bílinn auðþekkjanlegan og nokkrar framhaldsmyndir fylgdu í kjölfarið. DeLorean – Back to the Future DeLorean DMC-12 varð ein frægasta tímavél kvikmyndasögunnar í Back to the Future. Með hurðum sem opnast upp á við og yfirbyggingu úr ryðfríu stáli leit bíllinn þegar út fyrir að koma úr framtíðinni. Þegar hann náði 88 mílna hraða á klukkustund hófst ferðalagið í gegnum tímann. Aston Martin DB5 – James Bond Aston Martin DB5 kom fyrst fram með James Bond í Goldfinger árið 1964. Bíllinn var búinn vélbyssum, felgum sem gátu skorið dekk, skotheldri vörn og frægu útkastssæti. Hann hefur síðan birst í fjölda Bond-mynda og er enn sá bíll sem flestir tengja við njósnarann fágaða. Ecto-1 – Ghostbusters Ecto-1 er breyttur Cadillac-sjúkrabíll sem draugabanarnir nota í Ghostbusters. Bíllinn er hvítur með rauðum uggum og hlaðinn ljósum, loftnetum og dularfullum búnaði. Sírenuvælið og áberandi útlitið gerðu hann að ómissandi hluta myndanna og einu þekktasta kvikmyndafarartæki níunda áratugarins. Batmobile – Batman Leðurblökubíllinn hefur tekið miklum breytingum í gegnum tíðina en útgáfan úr Batman frá 1989 er meðal þeirra eftirminnilegustu. Langt húdd, vængir og gríðarstór þotuhreyfill gáfu bílnum ógnvekjandi yfirbragð. Batmobile var ekki aðeins farartæki heldur vopnabúr og mikilvægur hluti af ímynd Leðurblökumannsins. Mini Cooper – The Italian Job Rauður, hvítur og blár Mini Cooper léku lykilhlutverk í The Italian Job, bæði í upprunalegu myndinni frá 1969 og endurgerðinni frá 2003. Smæð bílanna gerði þeim kleift að aka niður stiga, í gegnum göng og inn í byggingar. Eltingarleikirnir gerðu Mini að tákni fyrir snerpu og breskan stíl. Nánar er fjallað um málið í sérblaðinu Bílar , sem fylgdi Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér .

Share this article