Lúxusbílaframleiðandinn Aston Martin Lagonda hyggst fækka starfsfólki sínu um 20% í von um að spara 40 milljónir punda, eða 6,6 milljarða króna, eftir að fyrirtækið greindi nýlega frá tapi. Á vef Guardian segir að hópuppsögnin komi eftir skipulagsbreytingar í byrjun síðasta árs sem leiddu til þess að 170 starfsmenn misstu vinnuna. Aston Martin greindi frá rúmlega 364 milljóna punda tapi árið 2025 miðað við 289 milljóna punda tap árið á undan. Þáverandi viðskipti höfðu þá verið háð mikilli óvissu vegna tollahækkana í Bandaríkjunum og minnkandi eftirspurnar. Sjá einnig Greiðir 8 milljarða til að nota Aston Martin í F1 til eilífðar Fjárfestar höfðu þegar undirbúið sig fyrir tapi eftir að bílaframleiðandinn gaf út hagnaðarviðvörun í síðustu viku en sú viðvörun var sú fimmta sem Aston Martin hefur gefið út síðan í september 2024.