Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hjördís Elsa nýr stjórnarmaður hjá Alfreð

Read Full Article →

Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir er nýr meðlimur í stjórn Alfreðs ehf. en hún kemur inn í stjórnina með víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Fyrir í stjórn voru stjórnarformaðurinn Jónas Friðrik Jónsson, Halldór Friðrik Þorsteinsson og Vernharður Reynir Sigurðsson. Jónas Friðrik Jónsson, stjórnarformaður Alfreðs, segist ánægður með að fá Hjördísi til liðs við teymið og að þekking og reynsla hennar muni reynast félaginu vel. Alfreð er hugbúnaðar- og þjónustufyrirtæki sem hefur frá stofnun árið 2013 þróað snjallar lausnir sem tengja saman fólk og fyrirtæki. Fyrirtækið hefur sérhæft sig á sviði atvinnuauglýsinga og ráðningalausna og vaxið hratt, bæði á Íslandi og erlendis. Alfreð rekur útibú í Tékklandi en sérleyfishafar bjóða upp á Alfreð á Möltu, Færeyjum og Grænlandi. Sjá einnig Alfreð opnar á Grænlandi „Það er mér mikill heiður að taka sæti í stjórn Alfreðs og ég þakka það traust sem mér er sýnt með þessu hlutverki. Alfreð er framsækið fyrirtæki sem hefur byggt upp sterka stöðu á grunni nýsköpunar,“ segir Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir.

Share this article