Sænsku liðin Häcken og Hammarby mættust í fyrstu úrslitum Evrópubikarkeppni kvenna í fótbolta. Tveir úrslitaleikir voru spilaðir en Häcken vann fyrri leikinn í síðustu viku 1-0 og var því með yfirhöndina fyrir leik dagsins. Landsliðskonurnar Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir spila með Häcken en Guðrún Arnardóttir leikur með Hammarby. Fanney stóð á milli stanganna hjá Häcken og Guðrún byrjaði í vörn Hammarby en Thelma Karen hóf leikinn á bekknum og kom inn á í byrjun seinni hálfleiks. Häcken byrjaði leikinn af krafti og var komið 2-0 yfir eftir níu mínútur með tveimur mörkum frá Feliciu Schröder. Guðrún þurfti að fara meidd af velli á 15. mínútu en skömmu síðar minnkuðu liðsfélagar hennar muninn og 2-1 stóð í hálfleik. Í upphafi seinni hálfleiksins jafnaði Elin Sörum svo metin fyrir Hammarby og staðan í einvíginu þá 3-2 Häcken í vil. Schröder hafði hins vegar ekki sagt sitt síðasta og fullkomnaði þrennuna með marki á 54. mínútu. Það reyndist síðasta mark leiksins og Häcken bar því sigur úr bítum, 3-2 og samanlagt 4-2 í úrslitaeinvíginu. Häcken er því fyrsti Evrópubikarmeistari kvenna en þetta er í fyrsta sinn sem þessi keppni er haldin. Á leið sinni að titlinum vann Häcken til að mynda Breiðablik í 8-liða úrslitunum.