Liðskonur Breiðabliks fagna marki.RÚV / Mummi Lú Breiðablik er dottið úr leik í Evrópubikar kvenna í fótbolta en liðið mátti þola tap 4-1 tap gegn Häcken í kvöld. Häcken er Svíþjóðarmeistari og vannst fyrri leikurinn 7-0. Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir léku með Häcken í kvöld. Þær sænsku komust í tveggja marka forskot með mörkum Pauliny Nyström og Emmu Östlund. Elísa Viðarsdóttir minnkaði muninn með glæsilegu skoti. En Håcken svaraði með mörkum frá Ölvu Selerud og Monicu Jusu Bah. Häcken vann því samanlagt 11-1.