Innviðasjóður í rekstri breska félagsins Ancala hefur ákveðið að setja helmingshlut sinn í HS Orku, eitt stærsta orkufyrirtæki landsins, í söluferli að því er Innherji greinir frá. Ancala hefur ráðið alþjóðlega fjárfestingarbankann Nomura sem ráðgjafa í söluferlinu. HS Orka, sem starfrækir m.a. sjö orkuver í Svartsengi, hefur verið í jafnri eigu innviðasjóðs Ancala og Jarðvarma, félags í eigu fjórtán íslenskra lífeyrissjóða, frá árinu 2019. Sjá einnig Eignarhald HS Orku í höfn Jarðvarmi bókfærði 50% eignarhlut sinn í HS Orku Holding hf. á 42,3 milljarða króna í lok síðasta árs sem gæti gefið vísbendingu um mögulegt söluverð. Þegar tilkynnt var árið 2019 um að Jarðvarmi hefði nýtt forkaupsrétt til að stækka hlut sinn í HS Orku og um kaup Ancala Partners á 50% hlut í orkufyrirtækinu sagði Davíð Rúdólfsson, stjórnarformaður Jarðvarma, að sérfræðiþekking Ancala á sviði endurnýjanlegrar orku og sameiginleg sýn á þau tækifæri sem væru til staðar fyrir HS Orku til lengri tíma hafi gert Ancala að ákjósanlegum meðeiganda. HS Orka hagnaðist um 3,7 milljarða króna eftir skatta á árinu 2025. Eignir samstæðunnar námu 89,6 milljörðum króna í árslok 2025 og eigið fé var um 37,5 milljarðar. Sjá einnig HS Orka fjárfestir hlutfallslega meira